ADHD og sumarfrí - spjallfundur í Reykjavík

ADHD og sumarfrí

ADHD samtökin halda opinn spjallfund í Reykjavík að Háaleitisbraut 13, 4. hæð um ADHD og sumarfrí, miðvikudaginn 19. maí kl. 20:00. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir. 

  • Fundinum verður einnig streymt á lokað svæði skuldlausra félagsmanna ADHD samtakanna á Facebook, ADHD í beinni.
Sumarfríin eru framundan, dagskrá skólanna að tæmast og við tekur sól sumar og taumlaus gleði... eða hvað? Þó sumarfríin séu og eigi að vera tími fjölskyldusamveru og fjölbreyttra skemtilegra viðburða, fylgja sumrinu einnig nýjar og fjölbreyttar áskoranir, þar sem rútínan riðlast og við tekur óvissa. Hjá börnum með ADHD og fullorðnum, getur þessi tími valdið mikilli streytu og vanlíðan ef ekki tekst vel til. Á fundinum mun Dr. Drífa Björk Guðmundsóttir, sálfræðingur fara yfir helstu áskoranir þessa mikilvæga tíma fjölskyldunnar, benda á hagnýt ráð til lausnar og leiða umræður.
Ef þú vilt leggja spurningar fyrir Drífu, fyrir fundinn, getur þú sent henni þær í netfangið: drifabg@gmail.com
Fræðslufundirnir eru opnir öllum, en þeir sem vilja ganga í ADHD samtökin geta gert það hér:

Mætum og bjóðum vinum með og byggjum upp öflugt ADHD samfélag á Íslandi

Skráðu þig á Facebook viðburð spjallfundanna og fáðu áminningu.

Yfirlit yfir spjallfundi má sjá hér

Við bendum líka á upptökur af nokkrum fræðslufundum ADHD samtakanna um ýmis ADHD málefn sem nálgast má hér.

Gerast félagsmaður. Hægt er að ganga í ADHD samtökin á meðfylgjandi síðu:
https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt

Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum um líf með ADHD.