Foreldranámskeið 6-12 ára

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur  barna með ADHD, 6-12 ára verður haldið dagana  25. mars og 1. apríl í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 11-13, 4. hæð.

Námskeið er haldið tvo laugardaga í röð, frá kl. 10:00-15:00.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna og unglinga með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna og unglinga með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Boðið verður uppá fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn.

Hver fyrirlestur er í 75 mín. og reiknað með góðum tíma í fyrirspurnir og umræður. 

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá verulegan afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér