ADHD og lyfjamál - Eru lyf eitthvað fyrir mig ?
ADHD samtökin halda opinn spjallfund í Reykjavík að Háaleitisbraut 13, 4. hæð um ADHD og lyfjamál, miðvikudaginn 20. október kl 20:30. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsúm leyfir.
- Fundinum verður einnig streymt á lokað svæði skuldlausra félagsmanna ADHD samtakanna á Facebook, ADHD í beinni.
Mikil umræða hefur verið um notkun lyfja og ADHD á liðnum misserum og víða má greina fordóma og vanþekkingu um þessi mál. Á fundinum verður farið yfir virkni helstu lyfja sem notuð eru vegna ADHD, rætt um mögulegar aukaverkanir og reynt að svara helstu spurningum sem brenna á vörum fundargesta.
- Umsjón með fundinum hefur Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna og dr. Elín Hrefna Garðarsdóttir geðlæknir.
Mætum og bjóðum vinum með og byggjum upp öflugt ADHD samfélag á Íslandi
Skráðu þig á Facebook viðburð spjallfundanna og fáðu áminningu.
Yfirlit yfir spjallfundi má sjá hér
Við bendum líka á upptökur af nokkrum fræðslufundum ADHD samtakanna um ýmis ADHD málefn sem nálgast má hér.
Gerast félagsmaður. Hægt er að ganga í ADHD samtökin á meðfylgjandi síðu:
https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt
Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum um líf með ADHD.