Opnir spjallfundir um ADHD í Vestmannaeyjum - undirbúiningur jóla.

Opinn spjallfundur um ADHD og Jólin i Vestmannaeyjum.
Opinn spjallfundur um ADHD og Jólin i Vestmannaeyjum.

Reglulegir opnir spjallfundir um ADHD hefja nú gögnu sína í Vestmannaeyjum, í umsjón ADHD Eyjar. Spjallfundirnir verða einu sinni í mánuði og er fjallað um sérstakt málefni í hvert og eitt sinn. Dagskrá vetrarins má kynna sér hér - dagskrá vetrarins. ADHD samtökin bjóða einnig upp á sambærilega spjallfundi í Reykjavík og á Akureyri og vonir standa til að fleyri sveitarfélög bætist við á næstu misserum.

Fyrsti spjallfundurinn í Vestmannaeyjum verður þann 28. nóvember nk.  en þá verður fjallað um undirbúning jóla og ADHD. Dr Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og stjórnarkona í ADHD samtökunum fjallar um, hvernig ýmislegt í jólaundirbúningnum, spenningnum sem fylgir jólunum og breyttri rútínu fjölskyldunnar í jólafríinu, getur valdið streitu og erfiðleikum hjá börnum og fólki með ADHD og gefur góð ráð um hvernig hægt er að bregðast við. Jólin eru enda og eiga að vera, hátíð gleðinnar hjá fólki með ADHD ekki síður en öðrum. Með virkri þátttöku fundargesta gefst einnig gott tækifæri til að læra af reynslu annarra og heyra uppbyggjandi reynslusögur. Á fundinum verður einnig hægt að nálgast bæklinga samtakanna, bækur um ADHD og annað fræðsluefni.

Spjallfundir ADHD Eyjar eru haldnir í sal Hamarsskólans, gengið er inn vestanmegin. Fundirnir eru opnir öllum, félögum í ADHD samtökunum, einstaklingum með ADHD, aðstandendum og öðrum áhugasömum um ADHD og skildar raskanir. Fundirnir hefjast kl. 20:00 og þeim lýkur yfirleitt um kl. 22:00. Enginn aðgangseyrir og heitt á könnunni.

Skráðu þig strax á Facebook viðburð Spjallfundanna og fáðu áminningu þegar þinn fundur nálgast - skráning hér. Við bendum líka á umræðuhópinn ADHD Eyjar, þar sem hægt er að leita ráða og ræða allt sem tengist ADHD - hópurinn er hér.

Hægt er að ganga í ADHD samtökin á meðfylgjandi síðu:
https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt