Ný og fjölbreytt námskeið ADHD samtakanna – stóraukið framboð!

Skráning er hafin á vornámskeið ADHD samtakanna 2022
Skráning er hafin á vornámskeið ADHD samtakanna 2022

Skráning er hafin á vornámskeið ADHD samtakanna. Ný og fjölbreytt námskeið – stóraukið framboð!
Árið 2022 byrjar að krafti hjá samtökunum en fram að sumri verða haldin amk 11 námskeið fyrir ýmsa hópa um fjölbreyttar hliðar ADHD.

Áfram verða á dagskránni námskeið sem hafa verið með einum eða öðrum hætti á liðnum árum og hafa hlotið mikið lof meðal þátttakenda eins og Áfram stelpur, TÍA – tómstundir, íþróttir og ADHD, foreldranámskeiðin og Taktu stjórnina en nú bætast einnig við ný og spennandi sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir börn og ungmenni, Súper krakkar og Súper stelpur og fjarnámskeiðið Áfram veginn, fyrir fullorðið fólk með ADHD. Námskeiðin verða flest haldin í sal ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13 og/eða í gegnum fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta komið á staðinn.

Skráning er hafin á öll námskeiðin en fram að áramótum njóta félagsmenn ADHD samtakanna forgangs að skráningu og sérstakra afsláttarkjara á öllum námskeiðunum. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður á flest námskeiðin - fyrstur kemur fyrstur fær. Hægt er að skrá sig í ADHD samtökin hér.

Nánar má fræðast um námskeiðin hér fyrir neðan.

 

Áfram stelpur! Fræðslu og sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur með ADHD (Mars eða Maí)
Áfram stelpur! er fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur með ADHD. Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem konur með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd, fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.

Að þessu sinni verður boðið uppá námskeiðið bæði í Mars og Maí. Bæði námskeiðin eru alls 10 klukkustundir, kennt á fjórum dögum, alls 2,5 klukkustundir í senn. Nánari upplýsingar um dagsetningar er að finna í námskeiðs lýsingunni og er hlekkur á það hér að neðan.

Innifalið í námskeiðsgjaldi er bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar kr. 5.900,- ein og sér.

Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur barna með ADHD
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Námskeiðið verður haldið í Reykjavík, laugardagana 12. og 19. febrúar 2022, frá kl. 10-15 en boðið verður uppá fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn.

Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér

 

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur unglinga með ADHD
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi unglinga með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur unglinga með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Námskeiðið verður haldið í Reykjavík, laugardagana 5. og 12. mars 2022, frá kl. 10-15 en boðið verður uppá fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn. Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

Taktu stjórnina - fræðslunámskeið fyrir fullorðna með ADHD (Janúar eða Apríl)
Markmið námskeiðsins er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari.

Að þessu sinni verður boðið uppá námskeiðið bæði í Janúar og Apríl. Bæði námskeiðin eru alls 10 klukkustundir, kennt á fjórum dögum, alls 2,5 klukkustundir í senn. Nánari upplýsingar um dagsetningar er að finna í námskeiðs lýsingunni og er hlekkur á það hér að neðan.

Innifalið í námskeiðsgjaldi er bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar kr. 5.900,- ein og sér.

Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

TÍA - tómstundir, íþróttir og ADHD (28 april og 19 maí)
Hnitmiðað og fjölbreytt námskeið um ADHD í tveim hlutum fyrir fagfólk sem starfar við íþrótta- og tómstundastarf og aðra aðila sem koma að skipulögðu starfi krakka með ADHD.

Námskeiðið er í höndum reynslumikilla fagaðila á sviðinu en þar fá þátttakendur hagnýt verkfæri, þjálfast í að nota þau, fræðslu um ADHD og gagnleg ráð. Unnið með reynslumiðuðum hætti með fyrri reynslu þátttakenda og efni námskeiðsins. Á milli þessara tveggja skipta þurfa þátttakendur að gera ráð fyrir tíma til að vinna með efnið í eigin starfi eða þjálfun. Farið er yfir mikilvæga þætti í öllu hópastarfi þar sem einkenni hópaþróunar er tekin fyrir og farið í hvernig stjórnandi hópsins getur nýtt þá krafta sem búa í hverjum hóp með jákvæðum hætti. Rætt er um heppilega og gagnlega samskiptahætti, markmiðasetningu og mikilvægi þess að leiðbeinendur virkji þátttakendur á jákvæðan og eflandi hátt.

Námskeiðið er kennt í tveimur lotum, í Reykjavík og/eða í gegnum fjarfundarbúnað, en nánari dagsetning verður birt síðar. Á milli lota æfa þátttakendur sig í að beita aðferðum námskeiðsins.

Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

Súper stelpur – Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir 13-16 ára stelpur með ADHD
Nýtt námskeið haldið í samstarfi við Sjálfstyrk sem er ætlað 13-16 ára stúlkum með ADHD. Á námskeiðinu læra stelpurnar leiðir til þess að efla sjálfsmynd, félagsfærni, tilfinningastjórnun og líkamsvirðingu. Unnið er út frá aðferðum hugrænni atferlismeðferðar (HAM), díalektískrar atferlismeðferðar (DAM), núvitundar og yoga.

Paola Cardenas og Soffía Elín Sigurðardóttir sálfræðingar Sjálfstyrks kenna námskeiðið og er allt efni byggt á gagnreyndum sálfræðimeðferðum. Viðgjöf er veitt til foreldra á meðan námskeiði stendur. Sjálfsmatskvarðar eru lagðir fyrir þátttakendur og viðgjöf veitt til foreldra í lok námskeiðs.

Námskeiðið fer fram í Reykjavík og er kennt á 7 dögum frá 24. febrúar til 28. apríl auk foreldrafundar. Greiða má fyrir námskeiðið með frístundastyrkjum sveitarfélaga.

Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

Súper Krakkar – sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir 9-12 ára stelpur með ADHD
Nýtt námskeiðið haldið í samstarfi við Sjálfstyrk sem er ætlað 9-12 ára stelpum með ADHD. Á námskeiðinu læra stelpurnar leiðir til þess að efla sjálfsmynd, félagsfærni og tilfinningastjórnun. Unnið er út frá aðferðum hugrænni atferlismeðferðar (HAM), díalektískrar atferlismeðferðar (DAM), núvitundar og yoga.

Paola Cardenas og Soffía Elín Sigurðardóttir sálfræðingar Sjálfstyrks kenna námskeiðið og er allt efni byggt á gagnreyndum sálfræðimeðferðum. Viðgjöf er veitt til foreldra á meðan námskeiði stendur. Sjálfsmatskvarðar eru lagðir fyrir þátttakendur og viðgjöf veitt til foreldra í lok námskeiðs. Paola og Soffía hafa nýverið gefið út bækurnar Súper Vitrænn og Súper Viðstödd og eru það fyrstu barnabækurnar í seríunni um Súperstyrkina. Bækurnar má kaupa í vefverslun ADHD samtakanna.

Námskeiðið fer fram í Reykjavík og er kennt á fjórum dögum frá 27. janúar til 17. febrúar.

Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

Súper Krakkar – Sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir 9-12 ára stráka með ADHD
Námskeiðið er haldið í samstarfi við Sjálfstyrk og er ætlað drengjum 9 -12 ára með ADHD. Á námskeiðinu læra strákarnir leiðir til þess að efla sjálfsmynd, félagsfærni og tilfinningastjórnun. Unnið er út frá aðferðum hugrænni atferlismeðferðar (HAM), díalektískrar atferlismeðferðar (DAM), núvitundar og yoga.

Paola Cardenas og Soffía Elín Sigurðardóttir sálfræðingar Sjálfstyrks kenna námskeiðið og er allt efni byggt á gagnreyndum sálfræðimeðferðum. Viðgjöf er veitt til foreldra á meðan námskeiði stendur. Sjálfsmatskvarðar eru lagðir fyrir þátttakendur og viðgjöf veitt til foreldra í lok námskeiðs. Paola og Soffía hafa nýverið gefið út bækurnar Súper Vitrænn og Súper Viðstödd og eru það fyrstu barnabækurnar í seríunni um Súperstyrkina. Bækurnar má kaupa í vefverslun ADHD samtakanna.

Námskeiðið fer fram í Reykjavík og er kennt á fjórum dögum frá 9. febrúar til 2. mars.

Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

Áfram veginn! Fjarnámskeið fyrir fullorðna með ADHD
Ertu eldri en 18 ára, kannski nýgreindur með ADHD eða fékkstu greiningu fyrir einhverju síðan? Þá er fjarnámskeiðið „Áfram Veginn” mögulega námskeið fyrir þig!

Fjarnámskeiðið Áfram veginn! er nýtt námskeið fyrir fullorðna með ADHD. Þar ætlum við að fræðast um ADHD með styrkleika að leiðarljósi en með auknum skilningi á þínu ADHD eykur þú líkurnar á betri stjórn og auknum lífsgæðum í daglegu lífi. Áskoranir ADHD geta haft margvísleg áhrif í daglegu lífi. Á námskeiðinu skoðum við hvar þær liggja og aðferðir til að takast á við þær og ná betri tökum á þeim.

Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundarbúnað ZOOM laugardagana 5. febrúar 2022 og 12. febrúar 2022 frá kl. 11 til 13 hvorn dag.

Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

Allar nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu ADHD samtakanna, eða hjá skrifstofu samtakanna í síma 5811110 og adhd@adhd.is  Félagsmenn ADHD samtakanna njóta sérstakra afsláttarkjara á öll námskeiðin og fram að áramótum forgangs að skráningu. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður á flest námskeiðin - fyrstur kemur fyrstur fær. Hægt er að skrá sig í ADHD samtökin hér.