Skráning hafin á haustnámskeið ADHD samtakanna 2021

Haustdagskrá námskeiða ADHD samtakanna
Haustdagskrá námskeiða ADHD samtakanna

Skráning er hafin á öll helstu námskeið ADHD samtakanna á haustönn 2021. Um er að ræða fimm námskeið, námskeiðin hafa verið haldin með einum eða öðrum hætti á liðnum árum og hafa hlotið mikið lof meðal þátttakenda. Námskeiðin verða haldin í sal ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Nánar má fræðast um námskeiðin hér fyrir neðan.

Félagsmenn ADHD samtakanna njóta sérstakra afsláttarkjara á öllum námskeiðunum, en fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fystur kemur fyrstur fær. Hægt er að skrá sig í ADHD samtökin hér.

Áfram stelpur! Fræðslu og sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur með ADHD.

Áfram stelpur! er fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur með ADHD. Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem konur með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd, fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.

Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fjögur skipti, 2.5 klukkukstundir í senn og það hefst þriðjudaginn 30. ágúst og lýkur 20. september 2021

Innifalið í námskeiðsgjaldi er bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar kr. 5.900,- ein og sér.

Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur barna með ADHD

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Námskeiðið verður haldið í Reykjavík, laugardagana 11. og 18. september 2021, frá kl. 10-15 en boðið verður uppá fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn. Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

TÍA - tómstundir, íþróttir og ADHD 

Nýtt! Hnitmiðað og fjölbreytt námskeið um ADHD í tveim hlutum fyrir fagfólk sem starfar við íþrótta- og tómstundastarf aðra aðila sem koma að skipulögðu starfi krakka með ADHD.

Námskeiðið er í höndum reynslumikilla fagaðila á sviðinu. Það eru þau Jakob Frímann Þorsteinsson, MA í náms- og kennslufræðum, Vanda Sigurgeirsdóttir MA í uppeldis- og menntunarfræði og Bóas Valdórsson klínískur sálfræðingur sem hafa veg og vanda að námskeiðinu. Vanda og Jakob starfa við HÍ og hjá KVAN og Bóas starfar sem sálfræðingur við MH.

Á námskeiðinu fá þátttakendur hagnýt verkfæri, þjálfast í að nota þau, fræðslu um ADHD og gagnleg ráð. Unnið með reynslumiðuðum hætti með fyrri reynslu þátttakenda og efni námskeiðsins. Á milli þessara tveggja skipta þurfa þátttakendur að gera ráð fyrir tíma til að vinna með efnið í eigin starfi eða þjálfun. Farið er yfir mikilvæga þætti í öllu hópastarfi þar sem einkenni hópaþróunar er tekin fyrir og farið í hvernig stjórnandi hópsins getur nýtt þá krafta sem búa í hverjum hóp með jákvæðum hætti. Rætt er um heppilega og gagnlega samskiptahætti, markmiðasetningu og mikilvægi þess að leiðbeinendur virkji þátttakendur á jákvæðan og eflandi hátt.

Námskeiðið er kennt í tveimur lotum bæði í staðnámi og í gegnum fjarfundarbúnað á raun tíma,  3 klst. í senn.  Á milli lota æfa þátttakendur sig í að beita aðferðum námskeiðsins.

1. lota verður 30. ágúst frá 10:00-13:00.

2. lota verður 20. september frá 10:00 -13:00.

Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

Taktu stjórnina - fræðslunámskeið fyrir fullorðna með ADHD 

Markmið námskeiðsins er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari.

Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fjögur skipti, 2.5 klukkukstundir í senn og það hefst þriðjudaginn 27. september - 18. október. 

Innifalið í námskeiðsgjaldi er bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar kr. 5.900,- ein og sér.

Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur unglinga með ADHD

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi unglinga með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur unglinga með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Námskeiðið verður haldið í Reykjavík, laugardagana 6. og 13. nóvember 2021, frá kl. 10-14 en boðið verður uppá fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn. Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu samtakanna  í síma 5881110 eða í vefpósti adhd@adhd.is