Skráning hafin á námskeið ADHD samtakanna í haust

Skráning er hafin á námskeið ADHD samtakanna í haust.
Skráning er hafin á námskeið ADHD samtakanna í haust.

Í ljósi gildandi samkomubanns vegna kórónuveirufaraldursins hefur stjórn ADHD samtakanna tekið þá ákvörðun, að fresta öllu hefðbundnu námskeiðahaldi á vegum samtakanna fram á haust.  Þar sem faraldurinn virðist hinsvegar í öruggri rénun hafa nýjar dagsetningar verið ákveðnar fyrir öll helstu námskeið samtakanna í haust og er skráning á þau námskeið þegar hafin.

Um er að ræða fimm námskeið, fjögur sem hafa verið haldin í einu eða öðru formi á liðnum árum og hafa hlotið mikið lof þátttakenda og eitt nýtt, fyrir konur með ADHD, sem heitir Áfram stelpur! Nánar má fræðast um námskeiðin hér að neðan.

Félagsmenn ADHD samtakanna njóta sérstakra afsláttarkjara á öllum námskeiðunum, en fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fystur kemur fyrstur fær. Hægt er að skrá sig í ADHD samtökin hér.

Áfram stelpur! Fræðslu og sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur með ADHD.

Áfram stelpur! er nýtt fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur með ADHD. Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem konur með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd, fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.

Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fimm skipti, 2 klukkukstundir í senn og það hefst þriðjudaginn 25. ágúst nk. í Reykjavík.

Innifalið í námskeiðsgjaldi er bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar kr. 5.900,- ein og sér.

Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

Ég get! Námskeið fyrir 14-16 ára unglinga með ADHD - aðeins 12 þátttakendur - hægt að greiða með frístundastyrk.

Ég get! er skemmtilegt og fræðandi sjálfstyrkingarnámskeið fyrir 14-16 ára unglinga með ADHD (8.-10. Bekkur). Námskeiðið samanstendur af fræðslu, umræðum og léttum verkefnum og hvatt er til virkrar þátttöku unglinganna.

Almenn fræðsla um ADHD er mikilvægur þáttur í að unglingarnir öðlist skilning á sjálfum sér og þeim áskorunum sem verða á vegi þeirra í daglegu lífi og sætti sig við greininguna.

Meiri áhersla er þó lögð á að efla sjálfsmynd unglinganna með því að draga fram þá styrkleika sem þeir búa yfir og benda þeim á leiðir til að nýta styrkleikana sína til að vinna með erfiðleikana.

Námskeiðið er haldið í Reykjavík, það er 20 klukkustundir og stendur í 10 vikur, hefst 30. september og lýkur 2. desember. Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

Taktu stjórnina - fræðslunámskeið fyrir fullorðna með ADHD 

Markmið námskeiðsins er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari.

Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fimm skipti, 2 klukkukstundir í senn og það hefst þriðjudaginn 29. september nk. í Reykjavík.

Innifalið í námskeiðsgjaldi er bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar kr. 5.900,- ein og sér.

Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur 6-12 ára barna með ADHD

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Námskeiðið verður haldið í Reykjavík, laugardagana 12. og 19. september 2020, frá kl. 10-15 en boðið verður uppá fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn. Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur 13-18 ára unglinga með ADHD

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi unglinga með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur unglinga með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Námskeiðið verður haldið í Reykjavík, laugardagana 7. og 14. nóvember 2020, frá kl. 10-14 en boðið verður uppá fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn. Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

Nánari upplýsingar og aðstoð veitir framkvæmdastjóri ADHD samtakanna í síma 5881110 eða vefpósti adhd@adhd.is