Haustnámskeið ADHD samtakanna

Haustnámskeið ADHD samtakanna 2024
Haustnámskeið ADHD samtakanna 2024

Haustnámskeið ADHD samtakanna - skráning hafin!
Opnað hefur verið fyrir skráningu á næstu námskeið ADHD samtakanna Framboðið er meira en nokkru sinni fyrr. Áfram verða á dagskránni námskeið sem hafa verið í boði með einum eða öðrum hætti á liðnum árum og hafa hlotið mikið lof meðal þátttakenda en nú bætast einnig við ný og spennandi sjálfsstyrkingarnámskeið og sumarnámskeið fyrir börn og ungmenni með ADHD.

Félagsmenn ADHD samtakanna njóta sérstakra afsláttarkjara á öllum námskeiðunum, en fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur fyrstur fær. Hægt er að ganga í ADHD samtökin hér - ganga í ADHD samtökin. Nánar má fræðast um námskeiðin hér fyrir neðan:

 

ADHD og fjármál - Stutt fjarnámskeið með aðferðum sem virka fyrir fólk með ADHD
Á námskeiðinu verður farið yfir helstu áskoranir varðandi ADHD og fjármála yfirsýn. Við förum yfir hvernig við getum byggt upp betra samband við fjármálin okkar, vinnum með hvatvísi og segjum bless við skömmina sem fylgir oft óreiðu í fjármálum. Við lærum mismunandi aðferðir til að setja okkur fjárhagsleg markmið og standa við þau og hvar við getum sparað. Við förum yfir hvernig er hægt að halda heimilisbókhald á einfaldan og skemmtilegan hátt og hvernig við búum okkur til ADHD vænar fjármála rútínur. Við einbeitum okkur betur að því að byggja upp jákvæðar tilfinningar fyrir fjármálin okkar og hvað það kostar okkur í raun og veru að lifa. Þú færð verkfæri eftir námskeiðið til þess að vera betur tengd við peningana þína til að stjórna þeim í stað þess að þeir stjórni þér.

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Valdís Hrönn Berg, fjárhagsmarkþjálfi.
Námskeiðið fer fram í gegnum Zoom, þriðjudaganna 12. og 19. nóvember milli 17:00 og 19:00 báða dagana.
Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

Áfram stelpur! Fræðslu og sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir konur með ADHD
Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem konur með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd, fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.

Til að anna eftirspurn eru námskeiðin tvö, í september og október og standa þau bæði í 9 klukkustundir - þrjú skipti, 3 klukkustundir í senn. Fyrra námskeiðið hefst fimmtudaginn 12. september og lýkur 26. september. Kennsla fer fram á fimmtudögum á milli 17:00 til 20:00. Námskeiðið er kennt í Lífsgæðasetrinu St. Jósefsspítala. Seinna námskeiðið hefst fimmtudaginn 24. október og lýkur 7. nóvember. Kennsla fer fram á fimmtudögum á milli 10:00 til 13:00. Námskeiðið er kennt í húsakynnum ADHD samtakanna.

Innifalið í námskeiðsgjaldi er bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar kr. 5.900,- ein og sér.
Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér fyrir  september og hér fyrir október.

 

Aðstandendanámskeið fyrir aðstandendur barna á aldrinum 6 - 12 ára
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna og ungmenna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna og ungmenna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Námskeiðið verður haldið í Reykjavík, laugardaginn 26. október 2024, frá kl. 09:00-16:00 en boðið verður uppá fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn. Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

Aðstandendanámskeið fyrir aðstandendur unglina á aldrinum 13 - 18 ára
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna og ungmenna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna og ungmenna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Námskeiðið verður haldið í Reykjavík, laugardaginn 14. september 2024, frá kl. 09:00-16:00 en boðið verður uppá fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn. Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

Taktu stjórnina - fræðslunámskeið fyrir fullorðna með ADHD
Markmið námskeiðsins er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari.

Námskeiðin eru tvö þetta haustið, annars vegar í september og hins vegar í október og standa þau bæði í 10 klukkustundir - fjögur skipti, 2,5 klukkustundir í senn. Kennsla á fyrra námskeiðinu er fer fram á þriðjudögum og er er fyrsti kennsludagur 3. september og stendur námskeiðið til 24. september. Kennsla námskeiðinu fer fram á milli 17:00 og 19:30. Kennsla í seinna fer fram á þriðjudögum, hefst 29. október og líkur 19. nóvember. Kennsla námskeiðinu fer fram á milli 13:00 og 15:30.

Innifalið í námskeiðsgjaldi er bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar kr. 5.900,- ein og sér.
Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér fyrir  september og hér fyrir október.

 

Áfram veginn! Fjarnámskeið fyrir fullorðna með ADHD
Ertu eldri en 18 ára, kannski nýgreindur með ADHD eða fékkstu greiningu fyrir einhverju síðan? Þá er fjarnámskeiðið „Áfram Veginn” mögulega námskeið fyrir þig!

Fjarnámskeiðið Áfram veginn! er námskeið fyrir fullorðna með ADHD. Þar ætlum við að fræðast um ADHD með styrkleika að leiðarljósi en með auknum skilningi á þínu ADHD eykur þú líkurnar á betri stjórn og auknum lífsgæðum í daglegu lífi. Áskoranir ADHD geta haft margvísleg áhrif í daglegu lífi. Á námskeiðinu skoðum við hvar þær liggja og aðferðir til að takast á við þær og ná betri tökum á þeim.

Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundarbúnað ZOOM laugardagana 11 og 18. september 2023 frá kl. 11:00 til 13:00 hvorn dag. Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

Understanding ADHD
The purpose of the webinar is to provide an overview and practical insight into attention deficit hyperactivity disorder in adults and children. The two-part webinar is designed to cater to participants with the necessary information and tools to better understand their ADHD or/and support their kids.

The Two-Part webinar is in total 4 hours long and takes place on two Saturdays 23rd and 30th September. Each part is 2 hours.
Date and time: two Saturdays, 12th and 19th October from 11:00 - 13:00. Registration form and further information here.

 

Leikskólinn og ADHD
Vefnámskeið sem er ætlað leikskólakennurum og öðru starfsfólki leikskóla sem vinna með börnum þar sem grunur leikur á ADHD eða greining liggur fyrir. Starfsfólk Frístundar í grunnskólum er einnig hvatt til að nýta sér þetta námskeið því námskrá leikskóla, þar sem áhersla er á nám í gegnum leikinn, er mjög líkt ákjósanlegu fyrirkomulagi Frístunda.

Námskeið þetta gefur þátttakendum tækifæri á að efla þekkingu sína á ADHD og þeim eiginleikum og áskorunum sem því getur fylgt. Farið verður m.a. yfir skipulag kennslu, tól og tæki sem nýtast í kennslu og kenndar verða aðferðir sem geta dregið úr óæskilegri hegðun og styrkja æskilega hegðun með því að byggja á styrkleikum nemandans. Samskipti, samvinna og samræmd vinnubrögð sem koma að nemendum með ADHD geta skipt sköpum. Farið verður yfir leiðir til að eiga farsæl samskipti milli heimilis og skóla. Þess ber að geta að það sem virkar fyrir nemendur með ADHD virkar í flestum tilfellum fyrir aðra og því er fólk hvatt til að sækja sér þetta námskeið.

Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundarbúnað ZOOM laugardaginn 5. október 2024 frá kl. 10:00 til 14:00.
Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

Grunnskólinn og ADHD
Fjarnámskeið fyrir kennara og leiðbeinendur í grunnskólum um birtingarmyndir ADHD og úrræði sem virka í kennslu, samskiptum og starfi.

Farið verður yfir birtingamyndir ADHD í skólanum, skipulag kennslu, tól og tæki sem nýtast í kennslu. Kenndar verðar aðferðir um hvernig draga má úr óæskilegri hegðun og styrkja æskilega hegðun með því að byggja á styrkleikum nemandans. Samskipti, samvinna og samræmd viðbrögð þeirra sem koma að nemendum með ADHD geta skipt sköpum. Farið er yfir leiðir til að eiga farsæl samskipti milli skóla og heimilis. Hvað er ADHD fókus og hvernig getur kennarinn aðstoðað nemendur við að finna sinn fókus.

Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundarbúnað ZOOM laugardaginn 21. september 2024 frá kl. 09:00 til 13:00.
Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

ADHD og ég - Strákar 10-12 ára
Er helgarnámskeið sem fer fram daganna 28. og 29. september og hefur það að markmiði að þátttakendur öðlist meiri skilning á ADHD röskuninni og hvernig hægt er að yfirstíga hindranir sem hún veldur, fái fleiri verkfæri sem nýtast í samskiptum og stuðla að bættri líðan, skilji að allir geri mistök og hvernig má nýta þau til að læra af þekki betur tilfinningar sínar og kynnist aðferðum til að efla tilfinningastjórnun.

Eftir námskeiðið fá aðstandendur upplýsingar og leiðbeiningar um efnið sem farið er yfir á námskeiðinu og tillögur að áframhaldandi vinnu með sínu barni. Umsjónarmenn námskeiðs eru Paula Newman, BA sálfræði og MPH Lýðheilsufræði Guðni Rúnar Jónasson, verkefnastjóri ADHD samtakanna.

Námskeiðið er helgarnámskeið og er samtals 5 klst. og er hvorum degi skipt upp í minni verkefni og umræður með reglulegu uppbroti og heilahvíld. Eins og áður kom fram þá er kennt daganna 28. og 29. September frá 10:00 til 12:30.
Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

ADHD og ég - Stelpur 10-12 ára
Er helgarnámskeið sem fer fram daganna 28. og 29. september og hefur það að markmiði að þátttakendur öðlist meiri skilning á ADHD röskuninni og hvernig hægt er að yfirstíga hindranir sem hún veldur, fái fleiri verkfæri sem nýtast í samskiptum og stuðla að bættri líðan, skilji að allir geri mistök og hvernig má nýta þau til að læra af þekki betur tilfinningar sínar og kynnist aðferðum til að efla tilfinningastjórnun.

Eftir námskeiðið fá aðstandendur upplýsingar og leiðbeiningar um efnið sem farið er yfir á námskeiðinu og tillögur að áframhaldandi vinnu með sínu barni. Umsjónarmenn námskeiðs eru Paula Newman, BA sálfræði og MPH Lýðheilsufræði Guðni Rúnar Jónasson, verkefnastjóri ADHD samtakanna.

Námskeiðið er helgarnámskeið og er samtals 5 klst. og er hvorum degi skipt upp í minni verkefni og umræður með reglulegu uppbroti og heilahvíld. Eins og áður kom fram þá er kennt daganna 28. og 29. September frá 13:00 til 15:30.
Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

ADHD og ég - velkomið fyrir öll á aldrinum 13-15 ára
Er helgarnámskeið sem fer fram daganna 9. og 10. nóvember og hefur það að markmiði að þátttakendur öðlist meiri skilning á ADHD röskuninni og hvernig hægt er að yfirstíga hindranir sem hún veldur, fái fleiri verkfæri sem nýtast í samskiptum og stuðla að bættri líðan, skilji að allir geri mistök og hvernig má nýta þau til að læra af þekki betur tilfinningar sínar og kynnist aðferðum til að efla tilfinningastjórnun.

Eftir námskeiðið fá aðstandendur upplýsingar og leiðbeiningar um efnið sem farið er yfir á námskeiðinu og tillögur að áframhaldandi vinnu með sínu barni. Umsjónarmenn námskeiðs eru Paula Newman, BA sálfræði og MPH Lýðheilsufræði Guðni Rúnar Jónasson, verkefnastjóri ADHD samtakanna.

Námskeiðið er helgarnámskeið og er samtals 6 klst. og er hvorum degi skipt upp í minni verkefni og umræður með reglulegu uppbroti og heila hvíld. Eins og áður kom fram þá er kennt daganna 9. og 10. nóvember frá 10:00 til 13:00.
Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

ADHD og náin sambönd
Á námskeiðinu ADHD og náin sambönd munu Kristbjörg Kona Kristjánsdóttir, ADHD markþjálfi og Anna Elísa Gunnarsdóttir félagsráðgjafi fara yfir efni sem tengist nánum samböndum og ADHD. Parasambönd geta verið margskonar, gefandi en á sama tíma krefjandi, og það á einnig við sambönd þar sem ADHD kemur við sögu. Markmið þessa námskeiðs er að auka gagnkvæman skilning á birtingarmyndum ADHD í parasambandi og skapa vettvang fyrir samtal og betri samskipti til að stuðla að bættum lífsgæðum.

Á námskeiðinu öðlist þið dýpri þekkingu á ADHD, kostum þess og áskorunum. Við skoðum hvernig ADHD hefur áhrif á samskipti og daglegt líf og reifum leiðir til að styðja við báða einstaklinga í sambandinu. Á námskeiðinu fléttum við saman fræðslu, umræðum og verkefnavinnu ásamt dæmum úr daglegu lífi. Leiðbeinendur á námskeiðinu eru Kristbjörg Kona Kristjánsdóttir ADHD markþjálfi og Anna Elísa Gunnarsdóttir félagsráðgjafi.

Námskeiðið er opið öllum sem vilja auka vitneskju sína um ADHD og náin sambönd, bæði pör og einstaklingar velkomin. Náskeiðið fer fram yfir tvo þriðjudaga, 12. og 19. nóvember, milli 19:30 og 22:00. í Gerðubergi.
Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

 

Polski ADHD seminar
Niebawem ogłosimy więcej informacji dotyczących kursu.