Áfram stelpur - október 2024

Fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeið ADHD samtakanna – Áfram stelpur!

Námskeiðið stendur í 9 klukkustundir - þrjú skipti, 3 klukkustundir í senn fimmtudagana 24., 31., október og 7. nóvember kl:17:00-20.00.

Markmið námskeiðs:

Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem einstaklingar með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd. Námskeiðinu er ætlað að fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.

Námskeiðið verður í húsnæði ADHD samtakanna Háaleitisbraut 13, 4. hæð . Leiðbeinandi er Sigrún Jónsdóttir, ADHD og einhverfu markþjálfi.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér. https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is