Áfram stelpur maí 2024

Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem einstaklingar með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd. Námskeiðinu er ætlað að fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.

Kennt er föstudagana 10., 17. og 24. maí kl:10.00-13:00 í húsnæði ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Námskeiðið verður í húsnæði Lífsgæðasetursins í St. Jósefsspítala. Leiðbeinandi er Sigrún Jónsdóttir, ADHD oí húsnæði ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð.g einhverfu markþjálfi.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is