Umferðarráðuneyti í hægagangi
15.06.2026
Undanfarin hálft sjöunda ár, allt frá gildistöku nýrra umferðarlaga árið 2020, hefur fólk með ADHD og aðrir viðkvæmir hópar sem nota ýmis lyf samhvæmt ávísunum lækna, búið við réttaróöryggi vegma laganna og framkvæmd þeirra. Tugir einstaklinga hafa orðið fyrir verulegum óþægindum vegna þessa, fjárhagstjóni og jafnvel misst ökuréttindin af ósekju. Helsu ástæður þessa eru vankantar á Umferðarlögum nr. 77/2019 og ekki síður skortur á reglugerð varðandi framkvæmd laganna.
ADHD samtökin fagna að fyrst nú sé loks einhver hreyfing komin á málið með drögum að reglugerð, en benda jafnframt, á í formlegri umsögn sinni um drögin, að þar sé alls ekki gengið nægilega langt. Umrædd reglugerð leysi einungis hluta vandans, sem umferðarlögin er tóku gildi 2020 ollu fólki með ADHD og fleirum. Taka verði á fyrrnefndu óréttlæti og réttaróöryggi heilstætt og án tafa.
Hér má sjá nýja umsögn ADHD samtakanna um reglugerðardrögin sem og tillögur samtakanna frá árinu 2023.