Ársfundur ADHD Norðurland á Akureyri

Ársfundur ADHD Norðurland á morgun, 1. október kl. 13:00-14:00 í húsakynnum Grófarinnar Hafnarstræti 95, 4. hæð, 600 Akureyri. Fjölmennum, tökum með okkur gesti og stóreflum starfið á Norðurlandi!

Fræðslufundur - Nýtt ADHD teymi Heilsugæslunnar fyrir fullorðna

Við minnum á fræðslufundinn í kvöld kl. 20:00 - í Seljakirkju í Reykjavík og beinu streymi fyrir félagsmenn ADHD samtakanna í ADHD í beinni. Jón Ólafur Ólafsson, teymisstjóri Geðheilsuteymis HH - ADHD Fullorðinna mætir til okkar og segir okkur frá nýstofnuðu teymi Heilsugæslunnar en það hóf starfsemi í febrúar á þessu ári en þó að teymið sé nýtt þá er það að taka við uppsöfnuðum vanda úr heilbrigðiskerfinu þ.á.m. biðlista. Ljóst er að margir eru óvissir um hvert hlutverk nýs teymis er, hver er stefnan um minnkun biðlista, hvað hefur mögulega orðið um umsókn þeirra og eða/langar einfaldlega að vita hvernig greiningarferlið gengur fyrir sig. Að lokinni kynningu gefst tækifæri til að spyrja spurninga.

Stofnfundur ADHD Suðurnes

Munið stofnfund ADHD Suðurnes í kvöld, mánudaginn 19. sept kl. 20:00 í húsakynnum Reykjanesapóteks, efri hæð (áður Sjálfstæðissalurinn) Hólagötu 15, 260 Reykjanesbæ. Ljóst er að gríðarlega þörf er á að bæta stöðu ADHD mála á Suðurnesjum, þörfin er mikil og úrræði fá. Tilgangur ADHD Suðurnesja á að vera að stuðla að fræðslu, veita félagsmönnum stuðning, veita yfirvöldum aðhald og vinna á fordómum sem fyrirfinnast í samfélaginu sem og hjá hinu opinbera. Tökum með okkur gesti - fjölmennum!

Hvað verður um ADHD eftir 67 ára?

ADHD samtökin og ADHD Vesturland bjóða upp á opinn fræðslufund um eldra fólk og ADHD, fimmdaginn 15. September nk. kl. 19:30. Fundurinn verður haldinn í aðstöðu Samfylkingarinnar á Akranesi og er ætlaður öllum sem vilja fræðast um ADHD og efri árin. Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræðingur hefur veg og vanda að spjallfundinum og mun hún koma víða við.

ADHD og konur

ADHD og konur Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi, námskeiðahaldari og stjórnarkona í ADHD samtökunum ætlar að koma og fræða okkur um ADHD og konur sem er hennar hugðarefni. Gríðarlegur fjöldi kvenna hefur ekki fengið greiningu á ADHD og er það ein af ástæðunum fyrir því að þær eru einn stærsti hópurinn sem tekst á við kulnun í dag. Hvað er til ráða og hvar á að byrja.

Spjallfundirnir fara af stað

Þá er komið að því! spjallfundir ADHD Samtakanna fara í gang á mánudaginn 12. September en þeir verða mánaðarlega í allan vetur. Fyrsti fundurinn tekur á ADHD og foreldrahlutverkinu. Tilgangurinn er að ræða saman um reynslu okkar af ADHD, læra af hvort öðru, deila góðum bjargráðum og vera sterkari saman. Hvort þú er ógreind/ur, nýgreind/ur eða langgreind/ur þá er þessi fundur fyrir þig. Hver fundur hefur eitt yfirumræðuefni en fundargestum er frjálst að koma með spurningar, leita ráða og tala um sín hugðarefni. Fundurinn er í húsakynnum ADHD Samtakanna, Háaleitisbraut 13 á fjórðu hæð. Húsið opnar 19:45 og er opið öllum, heitt á könnunni.