Þátttakendur á Aðstandendanámskeiði fá frían aðgang að Kiddo í mánuð

Þátttakendur á Aðstandendanámskeiði fá frían aðgang að Kiddo í mánuð. Á námskeiðinu verður boðið upp á aðstoð við að setja appið upp fyrir hvern og einn. Kiddo er fjölskylduapp sem hjálpar börnum að fylgja rútínum, klára verkefni og vera stolt af framförum sínum KIDDO er app fyrir spjaldtölvur, Ipad og Android https://kiddo.kids

Foreldrahópur - Saman í gegnum ADHD fer aftur af stað í október

ADHD samtökin í samvinnu við Sjónarhól ráðgjafarmiðstöð halda áfram með foreldrahóp fyrir foreldra, forráðafólk og aðstandendur barna með ADHD, Saman í gegnum ADHD.

ADHD krakka rannsókn: Snillingarnir og Krakkaráðgjöfin fyrir 10-12 ára börn með ADHD

Miðvikudagur 6. október - Velkomin í Kaos klúbbinn

Á þessum fræðslufundi verður fjallað um mikilvægi jafningjastuðnings og jafningjafræðslu fyrir foreldra og aðstandendur barna með ADHD. Hvernig getur það hjálpað að hitta aðra sem deila svipaðri reynslu? Hvers vegna skiptir máli að vita að aðrir hafa gengið í gegnum það sama og fundið leiðir sem virka? Við ræðum stöðu ADHD-fjölskyldna á Íslandi í dag, förum yfir góðar leiðir til að vinna með foreldrastreitu og kynnum þau úrræði sem ADHD samtökin og Sjónarhóll bjóða upp á.

Iceland Living á RUV á sunnudag kl. 20:45

ADHD samtökin vekja athygli á stuttmyndinni Iceland Living sem sýnd verður á RUV næstkomandi sunnudag kl. 20:45 í tilefni af gulum september. Framleiðendur myndarinnar eru Atli Óskar Fjalarson og Viktor Sigurjónsson en ADHD samtökin voru einn af styrktaraðilum stuttmyndarinnar.

Ekki missa af málþingi ADHD samtakanna! - Þegar ADHD fylgir þér