Marklausar yrðingar alþingisbola

"Mig setti hljóðan við orð Haraldar Einarssonar á Alþingi þann 12. nóvember, þar sem þingmaðurinn fullyrti „að draga mætti úr eða nánast lækna 63% þeirra sem greinast með ADHD með breyttu mataræði“. Máli sínu til stuðnings vísaði Haraldur til bókarinnar Meltingarvegurinn og geðheilsa eftir Dr. Natöshu Campbell-McBride. Sagði efnið nokkuð torlesið, en ítrekar að höfundur rökstyðji mál sitt rækilega. Mér væri ljúft og skylt að senda Haraldi nokkra tengla til upplýsingar," skrifar Vilhjálmur Hjálmarsson, einstaklingur með ADHD í Fréttablaðið í dag.

Best að biðtíminn væri enginn

"Auðvitað gæti maður sagt að best væri að biðtíminn væri enginn, en landlæknir hefur sett fram viðmið um biðtíma eftir ýmissi þjónustu innan heilbrigðiskerfisins. Að áliti embættis landlæknis ætti bið eftir sérfræðiþjónustu ekki að vera lengri en þrír mánuðir. Vissulega væri slíkt æskilegt," sagði heilbrigðisráðherra meðal annars í svari við fyrirspurn Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur formanns velferðarnefndar á Alþingi.

Jólakortin komin í sölu

ADHD samtökin selja jólakort fyrir þessi jól líkt og áður. Tvö ný kort hafa nú verið gefin út og eru bæði með myndum eftir Mæju - Maríu Sif Daníelsdóttur. Sex stykki eru í pakka, þrjú kort með hvorri mynd og kostar pakkinn kr. 1.800,-.

Spjallfundur í kvöld

Að eiga maka með ADHD er umfjöllunarefni spjallfundar fyrir fullorðna sem hefst klukkan 20.30 í kvöld á fjórðu hæð Háaleitisbrautar 13.

Spjallfundur fyrir foreldra og forráðamenn: ADHD og lyf

Spjallfundur verður í kvöld fyrir foreldra og forráðamenn. Yfirskriftin er "ADHD og lyf" og leiða fundinn þau Elín Hrefna Garðarsdóttir, geðlæknir og Vilhjálmur Hjálmarsson, leikari og einstaklingur með ADHD. Fundurinn verður að Háaleitisbraut 13 - 4.hæð og hefst klukkan 20:30 Allir velkomnir í kaffi og notalega stund án endurgjalds.

Hvað finnst ráðherra viðunandi biðtími?

Formaður velferðarnefndar Alþingis, Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, spyr Kristján Þór Júlíusson, heilbrigiðsráðherra um þann vanda sem við blasir vegna fullorðinna einstaklinga með ADHD og hvað ráðherra telji viðunandi biðtíma eftir greiningu og meðferð. Þingmaðurinn spyr ennfremur um hvaða vinna sé í gangi til að skilgreina ferla betur en nú er.

Bókarhöfundar í Bítinu

Elín H. Hinriksdóttir, formaður ADHD samtakanna og Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, ritari samtakanna, voru gestir Í bítinu á Bylgjunni ímorgun. Þar ræddu þær um nýútkomna bók sem þær þýddu og staðfærðu úr dönsku, "Leikskólar og ADHD - 25 ráð og verkfæri".