Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur unglinga með ADHD verður haldið laugardagana 6. & 13. nóvember 2021

SKRÁNING STENDUR YFIR á hið sívinsæla fræðslunámskeið fyrir aðstandendur unglinga með ADHD. Námskeiðið verður haldið í húsnæði ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð, Reykjavík laugardagana 6. nóvember og 13. nóvember 2021 (sjá skipulag hér fyrir neðan).

Fyrstu hvatningarverðlaun ADHD Samtakanna

Á málþingi ADHD samtakanna, sem ber undirskriftina Orkuboltar og íþróttir, voru veitt fyrstu hvatningarverðlaun samtakanna en handhafi þeirra er Urður Njarðvík, prófessor við Háskóla Íslands. Urður lauk BA-prófi í sálfræði frá Háskóla Íslands 1993, meistaragráðu í klínískri barnasálfræði við Louisiana State University 1997 og doktorsprófi frá sama skóla árið 2000. Hún lauk jafnframt kandidatsári í klínískri barnasálfræði frá Johns Hopkins University Medical School árið 2000.

Ný bók um stýrifærni krakka með ADHD

Lærðu að skipuleggja og gera áætlanir - Þjálfun í stýrifærni fyrir krakka með ADHD, er nýjasta bókin í Lærðu að bókaröðinni, eftir klíníska sálfræðinginn Kathleen G. Nadeau en áður hafa komið út á Íslensku bækurnar; Lærðu að láta þér líða vel og vera í jafnvægi og Lærðu að hægja á og fylgjast með. Kathleen er alþjóðlega þekktur höfundur og fræðimanneskja á sviði ADHD og sannarlega fengur að fá að aðra bók frá henni en þessi bók er sem fyrr þýdd af Gyðu Haraldsdóttur. Bókina má fá í vefverslun ADHD samtakanna

Orkuboltar og íþróttir – Málþing ADHD samtakanna

Október er alþjóðlegur ADHD vitundarmánuður en tilgangur hans er að vekja athygli á aðstæðum einstaklinga með ADHD. Í tilefni þess standa ADHD samtökin fyrir málþingi er nefnist „Orkuboltar og íþróttir“ sem haldið er næstkomandi föstudag, 29. október. Kl. 13:00-16:00. Málþinginu er ætlað að varpa ljósi á stöðu einstaklinga með ADHD í íþrótta- og tómstundastarfi. Á málþinginu verða kynntar ýmsar nýjar leiðir sem farnar hafa verið í nálgun og vinnu með börnum með ADHD.

Brautryðjandi kvaddur

Það var um 1990 að Páll hóf leit að úrræðum fyrir ákveðinn hóp barna sem komu ítrekað aftur á Barna- og unglingageðdeild eftir útskrift þaðan. Það bar þann árangur að hann hófst handa við að fá með sér samstilltan hóp fagfólks til að kynna sér nýjar leiðir í greiningu og meðferð þessara barna, sem í fyrstu voru kölluð ofvirk. Unnið var samkvæmt stöðlum aðferðum og mikil áhersla lögð á stuðning og fræðslu við foreldra. Hópurinn, þróaði námskeið um ADHD og meðal annars var hafið skipulegt samstarf við Foreldrafélag misþroska barna og síðan ADHD samtökin.

ADHD og lyf - Spjallfundur í kvöld kl. 20:30

Vilhjálmur Hjálmarsson formaður ADHD samtakanna ásamt Elín Hrefnu Garðarsdóttur, geðlækni ætla að ræða um Lyf og ADHD. Ekki láta þennan spjallfund framhjá þér fara !

TÍA, námskeið fyrir þjálfara og frístundarstarfsmenn hefst 8. nóvember næstkomandi --------> SKRÁNING ER HAFIN

Hér hafa þjálfarar og annað starfsfólk frístundar tækifæri til að vera framúrskarandi í þörfum barna með ADHD. Hnitmiðað og fjölbreytt námskeið um ADHD í tveim hlutum fyrir fagfólk sem starfar við íþrótta- og tómstundastarf sem og aðra aðila sem koma að skipulögðu starfi krakka með ADHD. Námskeiðið er í höndum reynslumikilla fagaðila á sviðinu. Það eru þau Jakob Frímann Þorsteinsson, MA í náms- og kennslufræðum, Vanda Sigurgeirsdóttir MA í uppeldis- og menntunarfræðum og Bóas Valdórsson klínískur sálfræðingur sem hafa veg og vanda að námskeiðinu. Vanda og Jakob starfa við HÍ og hjá KVAN, ásamt því er Vanda nýkjörin formaður KSÍ og Bóas starfar sem sálfræðingur við MH.

Mannlegi þátturinn - Viðtal við Bóas Valdórsson

Bóas Valdórsson, sálfræðingur við Menntaskólann í Hamrahlíð og stjórnarmaður í ADHD Samtökunum mætti í Mannlega þáttinn í vikunni og ræddi við Guðrúnu Gunnarsdóttur og Gunnar Hansson um málþing samtakanna sem eru haldið nú í Október þar sem mánuðurinn er vitundarmánuður ADHD fólks á heimsvísu. Málþingið snýr að þessu sinni að einstaklingum með ADHD í íþrótta og tómstundastarfi. Bóas segir það gríðarlega mikilvægt að auka þekkingu á því hvernig á að vinna með börnum með ADHD í íþrótta og tómstundarstarfi því oft eru það staðirnir þar sem ADHD krakkar geta náð langt og byggt upp sjálfstraust. Viðtalið er hægt að nálgast í heild sinni hér. Nánari upplýsingar og skráning á námskeiðið fer fram hér á heimasíðu samtakanna.

Framhaldsskólinn og ADHD - Spjallfundur í Reykjavík

ADHD samtökin bjóða upp á opin spjallfund um unglinga og ADHD, miðvikudaginn 6. október nk. kl. 20:30. Fundurinn verður haldinn í fundarsal ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4.hæð og er ætlaður öllum sem vilja fræðast um ADHD og framhaldsskóla. Bóas Valdórsson sálfræðingur hefur umsjón með spjallfundinum. Hann hefur unnið í mörg ár með börnum og unglingum með ADHD og þekkir því málaflokkin vel.

Forsætisráðherra afhent endurskinsmerki ADHD samtakanna

Október er alþjóðlegur vitundarmánuður fólks með ADHD og í ár verður athyglinni sérstaklega beint að tómstundum og íþróttum og þátttöku barna með ADHD. Til að marka upphaf vitundarmánaðarins var Forsætisráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, afhent fyrsta endurskinsmerki ADHD samtakanna árið 2021. Endurskinsmerki Hugleiks Dagssonar er nú fáanlegt í vefverslun samtakanna og verður selt víða um land í október.