Forsætisráðherra afhent endurskinsmerki ADHD samtakanna

Október er alþjóðlegur vitundarmánuður fólks með ADHD og í ár verður athyglinni sérstaklega beint að tómstundum og íþróttum og þátttöku barna með ADHD. Til að marka upphaf vitundarmánaðarins var Forsætisráðherra, Katrínu Jakobsdóttur, afhent fyrsta endurskinsmerki ADHD samtakanna árið 2021. Endurskinsmerki Hugleiks Dagssonar er nú fáanlegt í vefverslun samtakanna og verður selt víða um land í október.

Orkuboltar og íþróttir - málþing ADHD Samtakanna

Október er alþjóðlegur ADHD vitundarmánuður en tilgangur hans er að vekja athygli á aðstæðum einstaklinga með ADHD. Í tilefni þess standa ADHD samtökin fyrir málþingi er nefnist „Orkuboltar og íþróttir“ sem haldið er föstudaginn 29. október næstkomandi kl. 13:00-16:00. Málþinginu er ætlað að varpa ljósi á stöðu einstaklinga með ADHD í íþrótta- og tómstundastarfi. Á málþinginu verða kynntar ýmsar nýjar leiðir sem farnar hafa verið í nálgun og vinnu með börnum með ADHD.

Fyrsti spjallfundur haustsins í Eyjum verður þann 30. september næstkomandi

ADHD Vestmannaeyjar bjóða upp á opinn spjallfund um heimlærdóm og ADHD,, Hvernig læri ég heima án þess að GUBBA?!'' þann 30 sept nk. kl. 19:30. Fundir ADHD Vestmannaeyja eru haldnir fundarsalnum á flugvelli Vestmannaeyja, gengið er inn vestanmegin. Fundirnir eru opnir öllum, félögum í ADHD samtökunum, einstaklingum með ADHD, aðstandendum og öðrum áhugasömum um ADHD og skildar raskanir.

Að læra að kenna

Undanfarið hefur krafa um breyttar áherslur í kennslu orðið sífellt háværari. Ýmislegt hefur breyst á síðastliðnum árum, í auknum mæli sækja kennarar sér endurmenntun og gera margir hverjir sitt allra besta til að koma til móts við kröfur sem á kennara eru lagðar. Kröfur sem snúast um kennslu og kennsluaðferðir með því augnamiði að koma til móts við alla nemendur hvar sem þeir eru staddir. Umræðan helgast að mörgu leiti um aukna ábyrgð skólans og um leið þá kröfu samfélagsins að skólarnir taki að sér stærra hlutverk í uppeldi barna. Sér í lagi þegar eitthvað bjátar á í samfélaginu. Hér má sem dæmi nefna kennslu í fjármálalæsi sem sett var inn í námskrá eftir efnahagshrunið. Hér er hreint ekki verið að gagnrýna þann tiltekna lið enda nauðsynleg fræðsla nú á tímum. Aftur á móti má velta fyrir sér forgangsröðuninni. Er kannski eitthvað í núverandi námi sem skiptir minna máli og mætti ef til vill missa sín. Þurfa t.d. allir að kunna tengiskrift, algebru eða orðflokkagreiningu? Er ekki nær að kenna börnum að fóta sig í samfélagi nútímans, aðstoða þau við að efla styrkleika sína og mæta þeim af skilningi og umburðarlyndi.

Kosningasíða ADHD samtakanna

Kosningasíða ADHD samtakanna er komin í loftið. Þar er hægt að nálgast svör stjórnmálaflokkanna við spurningum um hvernig þeir hyggjast leysa þann gríðarlega vanda sem er til staðar í málefnum fólks með ADHD. Flokkarnir fengu fjórar spurningar til að svara og þeim var einnig gefin kostur á að koma á opinn fund ADHD samtakanna og kynna svör of sýn þeirra á hvernig á að leysa þann vanda sem er fyrir hendi.

Stofnfundur ADHD Suðurlands

Síðastliðinn fimmtudag var haldinn stofnfundur ADHD Suðurland í barnaskóla Eyrarbakka og Stokkseyrar á Stokkseyri. Á fundinum fengu gestir stuttan fyrirlestur um nám og ADHD frá Jónu Kristínu Gunnarsdóttur, kennara og varaformans ADHD samtakanna. Bjartur Ingason fræddi okkur líka um sína reynslu um af því að fara í gegnum skólakerfið með ADHD. Bjartur er 22 ára starfsmaður á leikskóla og námsmaður og hefur sterka sögu af því hversu mikilvægt er að hafa stuðning að heiman fyrir ADHD einstaklinga í námi. Dagskrá vetrarins var kynnt en áætlað er að halda að lámarki 4 fundi á Suðurlandi í vetur og að fundirnir verði haldnir til skiptis í þéttbýliskjörnum svæðisins.

Að byrgja brunninn

Fyrir einstakling með ógreint og/eða vanmeðhöndlað ADHD [eða aðrar raskanir] skiptir snemmbært inngrip sköpum. Óbreytt staða getur hæglega leitt til kvíða og þunglyndis, rýrir þannig lífsgæði og afleiddur kostnaður einstaklings sem og hins opinbera óheyrilegur, hvort heldur í félagslegu eða hagrænu tilliti.

Fyrsti spjallfundur haustsins á Norðurlandinu þann 14. september - HJÁLP! maki minn er með ADHD!?

Elín H. Hinriksdóttir fer hér yfir leiðir til að þrauka sambúð með maka með ADHD :) Þeir eru yndislegir, en rosalega óskipulagðir, jesús minn óskipulagið. Makar og aðstandendur ADHD einstaklinga, komum saman og röntum um ADHD, óskipulag, óstundvísi og svo alla frábæru kostina !

Biðlistar eða besta land í heimi - kjósum ADHD! Upptaka frá opnum fundi ADHD samtakanna

Upptaka af Opnum fundi ADHD samtakanna um stöðu greininga á ADHD á Íslandi í aðdraganda kosninga en fundurinn var hluti af Fundi fólksins sem fór fram í Grósku í Vatnsmýri, laugardaginn 4. september 2021.

Námskeið fyrir aðstandendur barna með ADHD hefst þann 11. september - Enn hægt að skrá sig á fjarnámskeið.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.