Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur unglinga með ADHD - Síðustu forvöð til að skrá sig

Skráningu er að ljúka á fræðslunámskeið fyrir aðstandendur 13-18 ára unglinga með ADHD sem verður haldið 12. & 19. mars 2022 í húsnæði ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13 í Reykjavík og í gegnum fjarfundarbúnað. Námskeiðið er eitt af elstu námskeiðum samtakanna og jafnframt það námskeið sem best viðbrögð hefur fengið hjá þátttakendum.

Áfram stelpur - námskeið fyrir konur með ADHD hefst 1. mars.

Áfram stelpur - námskeið fyrir konur með ADHD hefst 1. mars nk. Fræðsla um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir og ólíkar birtingarmyndir. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi og draga úr streitu. Nokkur sæti laus - afsláttur fyrir skuldlausa félagsmenn ADHD samtakanna.

Súper stelpur - námskeið fyrir 13-16 ára stelpur með ADHD

Skráningu er að ljúka á Súper stelpur - sjálfstyrkingarnámskeið ADHD samtakanna og Sjálfstyrks fyrir 13-16 ára stelpur með ADHD. Síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn. 22 febrúar kl. 12:00 - námskeiðið hefst sama dag kl. 20:00. Hægt er að greiða fyrir námskeiðið með frístundastyrk sveitarfélaga.

Kostir umbunakerfis og myndræns skipulags – Rafrænn fundur klukkan 20:00 í dag

Við minnum á fræðslufundinn á eftir klukkan 20:00 Kostir umbunakerfis og myndræns skipulags – Hvernig á að setja það upp og viðhalda því. Sigrún Jónsdóttir ADHD markþjálfi leiðir okkur í gegnum hvernig best er að setja upp og viðhalda slíkum kerfum. Fundurinn er aðgengilegur fyrir skráða félagsmenn samtakanna hér í hópnum ADHD í Beinni - https://www.facebook.com/groups/adhdibeinni

Áfram veginn

Áfram veginn er rafrænt námskeið fyrir fullorðna með ADHD. Það eru margir fullroðnir að lenda á vegg í Covid varðandi sitt ADHD, bæði þeir sem eru að fá greiningu fyrst núna og þeir sem hafa verið með greiningu í lengri tíma. Heimavinna, einvera og aðrir utanaðkomandi þættir eru gríðarlegt áreiti á einstaklinga með ADHD. Áfram vegin er námskeið sem leggur áherslu á styrkleika ADHD, auð auka skilning á þínu ADHD og auka stjórn og auka lífsgæði í daglegu lífi. Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundarbúnað ZOOM laugardagana 19. febrúar 2022 og 26. febrúar 2022 frá kl. 11 til 13 hvorn dag.