Fræðslufundur um ADHD, lesblindu og snjalltækni

Framkvæmdastjóri Félags lesblindra á Íslandi, Snævar Ívarsson, ætlar að heimsækja okkur 30. ágúst. Hann ætlar að kynna okkur starfsemi félagsins og fara yfir þau úrræði sem standa fólki með lesblindu, sem notar tölvur og snjalltæki, til boða. Rannsóknir sýna að helmingur einstaklinga með ADHD glíma við einhverja lesblindu. Snævar hefur mikla reynslu af því að kenna fólki með lesblindu að nota tölvur og aðra tækni til að aðstoða sig við lestur, skrift og skipulag. Hann mun koma með tölvuna sína og verkfæri sem hann kennir öðrum að nota. Húsið opna 19:45 og heitt er á könnunni.

Frábært Reykjavíkurmaraþon að baki

ADHD Samtökin vilja þakka þeim frábæra hópi hlaupara sem hljóp síðastliðinn laugardag og öllum þeim sem hétu á þau. Þessi súper hlaupahópur sprengdi gamla söfnunarmetið og fyrir það eru samtökin bæði þakklát og djúpt snortin. Reykjavíkurmaraþonið er mikilvægur liður í fjáröflun samtakanna. Í meira en 30 ár hafa ADHD samtökin unnið markvisst að því að einstaklingar með ADHD og skyldar raskanir og fjölskyldur þeirra, mæti skilningi í samfélaginu, fái stuðning, styrk og þjónustu sem stuðlar að félagslegri aðlögun, auknum möguleikum í námi, leik og starfi og almennt bættum lífsgæðum.

Örfá pláss eftir á Súper krakkar sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir 9-12 ára stráka

Námskeiðið sem er haldið í samstarfi við Sjálfstyrk og er ætlað drengjum 9 -12 ára með ADHD. Á námskeiðinu læra strákarnir leiðir til þess að efla sjálfsmynd, félagsfærni og tilfinningastjórnun. Unnið er út frá aðferðum hugrænni atferlismeðferðar (HAM), díalektískrar atferlismeðferðar (DAM), núvitundar og yoga. Sjálfstyrkingarnámskeið Sjálfstyrks og ADHD samtakanna - Súper krakkar 9-12 ára! Ætlað börnum sem gengur ágætlega að tileinka sér efni í 10 þátttakenda hóp.

Tilnefning til Hvatningarverðlauna ADHD Samtakanna

Hvatningarverðlaun ADHD samtakanna eru veitt hverjum þeim sem með mikilsverðum hætti hefur lagt sitt fram til bæta lífsgæði fólks með ADHD á Íslandi. Verðlaunin má veita til einstaklinga, félagasamtaka, stofnanna, fyrirtækja eða hverskyns lögaðila. Stjórn samtakanna veitir verðlaunin en óskar eftir tilnefningum frá félagsmönnum ADHD samtakanna. Tilnefna má einn eða fleiri, einstakling, félagasamtök, stofnun, fyrirtæki eða hverskyns lögaðila. Stuttur texti með rökstuðningi þarf að fylgja með. Ef tilnefna á fleiri en einn aðila er farið aftur í gegnum upphaflega hlekkinn. Frestur til að skila inn tilnefningum er til 1. september á meðfylgjandi formi. Farið verður með allar tilnefningar sem trúnaðarmál.

Að virka sem best með ADHD ? Spjallfundur á Egilsstöðum

Að virka sem best með ADHD ? ADHD Austurland býður upp á opinn fyrirlestur á spjallfundi með Jónu Kristínu Gunnarsdóttur, kennara og fv varaformanni ADHD samtkanna. Fundurinn verður í Menntaskólanum á Egilstöðum, stofu 12 og húsið opnar klukkan 16:15 og dagskrá hefst kl 16:30. Öll velkomin.

Vilhjálmur Hjálmarsson talks to the good people at Grapevine

Vilhjálmur Hjálmarsson Chair of ADHD samtökin/ADHD Iceland popped into the Grapevine headquarters to talk to Josie Anne and Valur about the state of ADHD affairs in Iceland today. Attention Deficit Hyperactivity Disorder, or ADHD, has been in the news in Iceland in recent months due to huge waiting lists for diagnosis and misconceptions in regards to ADHD medication and treatment. Vilhjálmur Hjálmarsson formaður ADHD samtakanna stoppaði við í viðtali hjá þeim Josie Anne og Val í hlaðvarpinu Íslenska samantektin sem er hlaðvarp frétta- og menningarmiðlinum Grapevine. Þar ræddi hann stöðu ADHD mál á landinu en staða greininga hefur verið mikið til umfjöllunar síðustu misserin auk þess fór hann yfir nokkrar staðreyndarvillur um lyfjagjöf og meðferð ADHD.

Skólinn og ADHD – Nýtt námskeið í haust

Enn bætist í flóru námskeiða sem samtökin eru bjóða uppá, en nú í enda ágúst hefst nýtt námskeið sem ætlað er kennurum og öðru starfsfólki skóla sem vinnur með börnum með ADHD. Námskeiðinu er ætlað að efla þekkingu skólasamfélagsins á ADHD röskuninni og þeim eiginleikum og áskorunum sem henni fylgja. Líðan barna er mikilvægur þáttur í öllu skólastarfi og tilfinningavandi getur haft afgerandi áhrif á námsframvindu. Fjallað er um kvíða og depurð og hvernig hægt er að draga úr neikvæðum áhrifum þeirra. Að auki er farið yfir hagnýtar leiðir í kennslu og umönnun barna með ADHD og hvernig hægt er að auka getu þeirra í námi, samstarfi og leik. Námskeiðið sem er fjarnámskeið, fer fram laugardaganna 27. ágúst og 3. september er kennt í tvo tíma í senn frá 10 til 12 báða daganna. Félagsfólk samtakanna fær afslátt að skráningargjaldinu og svo er hægt að sækja um til stéttarfélaga um niðurgreiðslu.

Hvetjum okkar fólk - Team ADHD!

Vel á þriðja tug einstaklinga munu hlaupa í fyrir ADHD samtökin í Reykjavíkurmaraþoninu í ár. Enn er hægt að slást í hópinn og/eða styðja hann - bæði í formi áheita og hvatningar á hlaupadeginum. Með því að heita á hlaupranna í Team ADHD getum við gert starfsemi ADHD samtakanna enn öflugri en ella. Bæði er hægt að heita á einstaka hlaupara eða hópinn í heild, en sú leið hentar auðvitað sérstaklega vel fyrir fyrirtæki og þá sem þekkja marga í hópnum.