Alþjóða geðheilbrigðisdagurinn er í dag - 10. október

Meira en fimmti hver einstaklingur glímir við einhvers konar geð- eða taugasjúkdómaröskun, á efri árum, svo sem geðraskanir eða þunglyndi. Þema Alþjóða geðheilbrigðidagsins að þessu sinni er “Geðheilsa á efri árum”.

Hættum þessum rugli, ræðum saman!

"Ein megináherslan í starfi Öryrkjabandalags Íslands á að vera samstarf og samningsumleitanir fyrir samfélagið, með áherslu á samræðu milli stjórnvalda, félaga sjúkra og fatlaðra og atvinnulífsins um lausnamiðaðar tillögur," segir m.a. í grein sem Ellen Calmon, framkvæmdastjóri ADHD samtakanna skrifar í Fréttablaðið í dag.

Umfjöllun um ADHD samtökin á N4

Umfjöllun um ADHD samtökin er meðal efnis í nýjum þætti sjónvarpsstöðvarinnar N4, "Borgarinn", sem fer í loftið klukkan 18:30 í kvöld.

ADHD-teymi á Landspítalanum lagt niður að óbreyttu

Fréttastofa RÚV greinir frá því að ADHD-teymi á Landspítalanum verði lagt niður að óbreyttu, þar sem fjárveitingar til þess eru alfarið skornar niður í nýju fjárlagafrumvarpi. Í samtali við RÚV segir framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans brýna þörf fyrir úrræðið.

Spjallfundur fyrir fullorðna í kvöld - Áhættuhegðun og hvatvísi

Minnum á spjallfundinn í kvöld kl. 20:30 miðvikudaginn 2. október fyrir fullorðna. Yfirskrift fundarins er "Áhættuhegðun og hvatvísi". Vilhjálmur Hjálmarsson, leikari og fullorðinn með ADHD leiðir fundinn. Fundurinn verður í húsnæði ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 2.hæð. Allir velkomnir, ókeypis aðgangur!