Endurskoðun umönnunargreiðslna hefst á ný

Vinna við endurskoðun umönnunargreiðslna til foreldra fatlaðra og langveikra barna hefur ekki enn farið fram vegna anna í öðrum verkefnum innan velferðarráðuneytisins. Skipaður hefur verið starfshópur sem mun hefja störf á allra næstu dögum. Þetta kom meðal annars fram í svari Eyglóar Harðardóttur, félags- og húsnæðismálaráðherra við fyrirspurn Sigríðar Ingibjargar Ingadóttur, þingmanns Samfylkingarinnar og formanns velferðarnefndar þingsins. Ráðherra reiknar með að starfshópurinn þurfi eitt ár til að fara vel yfir málin og að skýrslu verði skilað í árslok 2015.

Spjallfundur fyrir fullorðna - Kvíði

Munið eftir spjallfundinum í kvöld! Elín Hoe Hinriksdóttir, sérkennari og formaður ADHD samtakanna leiðir fundinn.

Fræðslufyrirlestur: Þjónusta við börn með ADHD - staða og stefna

ADHD samtökin bjóða upp á fræðslufyrirlestur í safnaðarheimili Neskirkju þriðjudaginn 10. febrúar undir yfirskriftinni "Þjónusta við börn með ADHD og skyldar raskanir: Staða og stefna". Þar mun Gyða Haraldsdóttir, forstöðumaður Þroska- og hegðunarstöðvar Heilsugæslunnar fjalla um fjalla um þjónustu við börn með ADHD á Íslandi, bæði út frá því hvernig hún er og hvernig hún ætti að vera, að hennar áliti.

Náum áttum: Áhrif snjalltækja í grunnskólastarfi

Fyrsti fundur Náum áttum á nýju ári er um snjalltækjavæðinguna og hvernig hún hefur möguleg og ómöguleg áhrif í grunnskólastarfi. Fyrirlesarar eru þau Björn Rúnar Egilsson frá Heimili og skóla, Linda Heiðarsdóttir aðstoðarskólastjóri Laugalækjarskóla og Sigurður Haukur Gíslason grunnskólakennari. Erindi þeirra fjalla um ýmsar hliðar netvæðingar og áhrif algengra snjalltækja á skólastarfið, nemendur og kennara.

Námskeið fyrir foreldra, fagfólk og aðra áhugasama

Dagskrá námskeiða vorannar 2015 eru komnar inn á síðu TMF Tölvumiðstöðvar en þar er boðið upp á ýmis námskeið sem geta gagnast foreldrum, fagfólki og ADHD einstaklingum.

Aðalfundur ADHD

Aðalfundur ADHD samtakanna árið 2015 verður haldinn í húsnæði samtakanna, Háaleitisbraut 13, mánudaginn 23. mars 2015 klukkan 20:00. Meðal venjulegra aðalfundarstarfa er kosning stjórnar samtakanna fram að aðalfundi 2016. Stjórn samtakanna er skipuð sjö mönnum og tveimur til vara. Formann skal kjósa sérstaklega og auglýsa samtökin eftir framboðum til setu í stjórn.

Námskeið um uppeldi barna með ADHD

Námskeiðið er ætlað foreldrum barna sem hafa einkenni ofvirkni og/eða athyglisbrests samkvæmt formlegri skimun eða fullnaðargreiningu. Efni námskeiðsins hentar best foreldrum barna á aldrinum 5-12 ára sem ekki hafa margar eða flóknar fylgiraskanir. Skráning er hafin.

Viltu lægra eldsneytisverð?

ADHD samtökin hafa náð samkomulagi við N1 um rýmri afsláttarkjör fyrir félagsmenn sína. Handhafar N1 korta og N1 lykils sem skrá sig í hóp ADHD samtakanna - númerið er 604 - fá 6 króna afslátt af hverjum lítra auk 2 N1 punkta af hverjum lítra. Þá er ríflegur afsláttur af bílaþjónustu og bílatengdum rekstrarvörum.

Fyrsti spjallfundur ársins

Fundurinn er fyrir foreldra og forráðamenn en umfjöllunarefnið er kvíði.

Munið fyrsta spjallfund ársins.

Að þessu sinni verður fundurinn fyrir foreldra og forráðamenn og umræðuefnið er kvíði.