Áfram veginn - fjarnámskeið í Mars

Ertu eldri en 18 ára, kannski nýbúin að fá ADHD greiningu? Þá er netnámskeiðið „Áfram Veginn” mögulega námskeið fyrir þig! Á netnámskeiðinu ætlum við að fræðast um ADHD með styrkleika að leiðarljósi. Áfram veginn er netnásmkeið sem er kennt yfir tvo laugardaga í Mars.

Úlfatíminn - opinn spjallfundur á Egilsstöðum

Hvaða foreldri kannast ekki við erfiðleikana og pirringinn sem skapast hjá börnum eftir að leikskóla lýkur og fram að háttatíma? Þetta er svokallaður úlfatími. Skapsveiflur, pirringur, hegðunarerfiðleikar og þessháttar eru ekki óalgengir hjá börnum á þessum tímapunkti og sérstaklega börnum með ADHD. Að versla í matinn, elda, borða, baða, bursta tennur, koma barninu í rúmið og svæfa er eilíf barátta. Þetta reynir á þolinmæðina og getur verið gríðarlega krefjandi tími. Hvernig er hægt að draga úr þessum árekstrum? Katrín Ruth Þorgeirsdóttir ráðgjafaþroskaþjálfi og hegðunarráðgjafi fer yfir nokkur góð ráð og aðferðir sem hægt er að nota til að létta heimilislífið og skapa jákvæðar samverustundir. Fundurinn verður haldinn í fundarsal á Hótel Héraði þann 15. febrúar næstkomandi og hefst klukkan 20:00. Heitt á könnunni. Hægt er að skrá sig á viðburðinn hér til að fá áminningu um hann: https://fb.me/e/3izwX1VIv Verið velkomin á fræðslufundinn!

Úlfatíminn- fundur í Reykjavík frestast til 24. maí vegna óviðráðanlegra orsaka

Hvaða foreldri kannast ekki við erfiðleikana og pirringinn sem skapast hjá börnum eftir að leikskóla lýkur og fram að háttatíma? Þetta er svokallaður úlfatími. Skapsveiflur, pirringur, hegðunarerfiðleikar og þessháttar eru ekki óalgengir hjá börnum á þessum tímapunkti og sérstaklega börnum með ADHD. Að versla í matinn, elda, borða, baða, bursta tennur, koma barninu í rúmið og svæfa er eilíf barátta. Þetta reynir á þolinmæðina og getur verið gríðarlega krefjandi tími. Hvernig er hægt að draga úr þessum árekstrum? Katrín Ruth Þorgeirsdóttir ráðgjafaþroskaþjálfi og hegðunarráðgjafi fer yfir nokkur góð ráð og aðferðir sem hægt er að nota til að létta heimilislífið og skapa jákvæðar samverustundir. Vegna óviðráðanlegra orsaka frestast fundurinn fram til 24 maí. Nánar auglýst síðar. Hægt er að skrá sig á Facebook síðu: XXXXX Verið velkomin á fræðslufundinn!

ADHD á mannamáli

Minnum á opinn spjallfund í Nýheimum um ADHD. Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og þroskaþjálfi ræðir og fræðir um ADHD áskoranir og styrkleika. Ertu með grun um að vera með ADHD eða ertu með greiningu? Er einhver nákominn með greiningu en vantar að fræðast frekar um ADHD röskunina. Opið verður fyrir umræður fyrir þá sem vilja Fundurinn fer fram 23. Febrúar klukkan 20:00 í fyrirlestrarsal Nýheima. Allir velkomnir, Heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt. Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum. Hægt er að skrá sig á viðburðinn á fb til að fá áminningu: https://fb.me/e/25oXsx5wm Hér er tengill til að skrá sig í samtökin: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

Understanding ADHD - Webinar in April

Last chance to register this week - Understanding ADHD is a webinar for English-speaking adults and parents of children with ADHD. The purpose of the webinar is to provide an overview and practical insight into attention deficit hyperactivity disorder in adults and children. The two-part webinar is designed to cater to participants with the necessary information and tools to better understand their ADHD or/and support their kids. The Two-Part webinar is in total 4 hours long and takes place on two Saturdays 22nd & 29th of April. Each part is 2 hours. Press the link below for more information.

Skólaumhverfið og ADHD - Síðasti séns til skráningar

Síðasti séns til að skrá sig á vefnámskeiðið ADHD og skólaumhverfið en það fer fram núna á laugardaginn (18. febrúar) en námskeiðið er ætlað starfsfólki skóla sem kemur ekki beint að kennslu barna en vinnur náið með þeim í leik og starfi. Námskeið þetta gefur þátttakendum tækifæri á að efla þekkingu sína á ADHD og þeim eiginleikum og áskorunum sem því getur fylgt. Farið verður m.a. yfir aðferðir sem geta dregið úr óæskilegri hegðun og styrkja æskilega hegðun með því að byggja á styrkleikum barnsins. Frímínútur, matsalur, færsla í og úr tímum, fataklefar, íþróttaaðstaðan og tómstundamiðstöðin eru staðir sem börn með ADHD eiga hvað erfiðast með og í þessum aðstæðum aukast líkur á árekstrum. Skilningur og rétt viðbrögð starfsfólks skóla og frístundamiðstöðva geta dregið úr slíkum atvikum og bætt líðan. Á þessu námskeiði er farið yfir birtingamyndir ADHD, hvernig hægt er með gagnreyndum aðferðum að draga úr óæskilegum uppákomum og styrkja sjálfsmynd barna með ADHD með því að byggja á styrkleikum. Samskipti og samvinna þeirra sem koma að börnum með ADHD geta skipt sköpum ásamt því að samræma viðbrögð. Fyrirlesari er Jóna Kristín Gunnarsdóttir, grunnskólakennari og hegðunarráðgjafi.

Fræðslufundur Suðurnes – Úrræði og aðstoð sveitarfélaganna

Á fundinum munu fulltrúar frá skrifstofu menntasviðs Reykjanesbæjar og fræðsluþjónustu Suðurnesjabæjar fjalla um mikilvægi samvinnu heimilis og skóla í tengslum við börn með ADHD og miðla af reynslu sinni um árangurríkar aðferðir. Einnig verður boðið upp á umræður. Gengið inn um aðalinngang Akurskóla Tjarnabraut 5. 260 Reykjanesbæ. Hægt er að leggja bílum á bílastæði við íþróttahús, hægra megin við skólann. Allir velkomnir, félagsmenn sem og aðrir. Heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt. Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum. Hægt er að skrá sig á viðburðinn á fb til að fá áminningu: https://fb.me/e/2uz05DRNu Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.

ADHD og ég - sjálfsstyrkingarnámskeið 10-12 ára stelpur

Hvernig birtist ADHD hjá mér og hvernig get ég byggt á styrkleikum mínum til að öðlast aukna færni eða læra nýja? Á námskeiðinu er farið yfir birtingarmyndir ADHD og þátttakendur læra leiðir til að kortleggja hvernig þær birtast hjá þeim. Með auknum skilningi eykst getan til að finna hvaða styrkleikar þeir hafa og hvaða þætti þarf að styrkja, t.d. félagsfærni, tilfinningastjórnun og jákvæðari sjálfsmynd. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur; *Öðlist meiri skilning á ADHD röskuninni og hvernig hægt er að yfirstíga hindranir sem hún veldur t.d. með aukinni hreyfingu, rútínu, slökun og matarræði *Efli færni í samskiptum og geti tileinkað sér að stoppa og hugsa áður en þeir bregðist við *Fái fleiri verkfæri sem nýtast í samskiptum og stuðla að bættri liðan *Skilji að allir geri mistök og hvernig má nýta þau til að læra af *Þekki betur tilfinningar sínar og kynnist aðferðum til að efla tilfinningastjórnun Námskeiðið er helgarnámskeið og er samtals 5 klst. og er hvorum degi skipt upp í minni verkefni og umræður með reglulegu uppbroti og heilahvíld.

ADHD og ég - sjálfsstyrkingarnámskeið 10-12 ára strákar

Nú fer hver að verða síðastur til að skrá sig á ADHD og ég fyrir stráka á aldrinum 10.-12. sem fer fram helgina 25.-26. febrúar Hvernig birtist ADHD hjá mér og hvernig get ég byggt á styrkleikum mínum til að öðlast aukna færni eða læra nýja? Á námskeiðinu er farið yfir birtingarmyndir ADHD og þátttakendur læra leiðir til að kortleggja hvernig þær birtast hjá þeim. Með auknum skilningi eykst getan til að finna hvaða styrkleikar þeir hafa og hvaða þætti þarf að styrkja, t.d. félagsfærni, tilfinningastjórnun og jákvæðari sjálfsmynd.

Lifið með ADHD - Sólveig Ásgrímsdóttir

Þrettándi þáttur af Lífinu með ADHD er kominn í hús en að þessu sinni settist Sólveig Ásgrímsdóttir, sálfræðingur niður með Guðna Rúnari Jónassyni verkefnastjóra ADHD samtakanna og ræddi málefni sem er Sólveigu nærri en það er staða eldri borgara með ADHD og athuganir sem hún hefur verið að fást við tengt efninu. Þáttinn er hægt að nálgast á eftirfarandi stöðum; Buzzsprout https://www.buzzsprout.com/1922294/12029483 Spotify https://open.spotify.com/episode/1XuoZHd1qEMVcHYUdMqXX4?si=zyeZEMoJQ8qEQSzJaMfpYQ