Viltu tilnefna til hvatningarverðlauna ÖBÍ?

Verðlaunin eru veitt í fjórum flokkum; einstaklings, fyrirtækis eða stofnunar, umfjöllunar eða kynningu og verkefni innan aðildarfélaga ÖBÍ.

Afmælishátíð ADHD samtakanna í Iðnó sunnudaginn 2. september

Sannkölluð fjölskylduhátíð verður haldin í Iðnó sunnudaginn 2. september í tilefni af 30 ára afmæli ADHD samtakanna kl. 14-17. Veislustjóri verður hin víðfræga Saga Garðarsdóttir en hún mun kynna Leikhópinn Lottu, Sirkus Íslands, Aaron Ísak, Hildi og fleiri glæsilega listamenn til leiks.

Hlauptu til styrktar ADHD samtökunum - Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

Við erum þakklát öllum þeim sem hafa skráð sig til leiks og hvetjum sem flesta til að skrá sig og heita á hlauparana.

Skrifstofa ADHD samtakanna verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með föstudeginum 22. júní og opnar aftur þriðjudaginn 7. ágúst.

Laus pláss í sumarbúðirnar Stelpur í stuði

Enn eru laus pláss í sumarbúðirnar Stelpur í stuði í Vindáshlíð. Flokkurinn er ætlaður 10 til 12 ára stelpum með ADHD. Skráning fer fram á vef KFUM. Hlíðarmeyjar í Vindáshlíð bjóða uppá sumarbúðir fyrir 10-12 ára stúlkur með athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir. Að þessu sinni verður flokkurinn Stelpur í stuði frá 30. júlí og til 2. ágústs. Markmiðið með Stelpum í stuði er að bjóða þennan hóp stúlkna velkominn í sumarbúðir í Vindáshlíð þar sem þörfum þeirra verður mætt á skilningsríkan og uppbyggilegan hátt. Starfsmenn sumarbúðanna munu starfa og halda utan um ævintýralega og skemmilega dagskrá ásamt sérfræðingum sem hafa fagþekkingu og reynslu við að vinna með börnum með ADHD. Það verða því fleiri starfsmenn í þessum tiltekna flokk til að koma sem best til móts við þarfir stúlknanna sem mæta í hann. Skráning fer fram á: http://www.kfum.is/sumarstarf/vindashlid/stelpur-i-studi/

Sumarlokun 22. júní til 7. ágúst

Skrifstofa ADHD samtakanna verður lokuð vegna sumarleyfa frá og með morgundeginum föstudaginn 22. júní og opnar aftur þriðjudaginn 7. ágúst.

Tilkynning Þröstur Emilsson hefur verið leystur frá störfum

Stjórn ADHD samtakanna hefur ákveðið að leysa framkvæmdastjóra þeirra, Þröst Emilsson, frá störfum.

Þrengt að afhendingu ADHD lyfja frá 1. júlí 2018

Afgreiðsla Metýlfenídatlyfja eða ADHD lyfja verður takmörkuð frá og með 1. júlí næstkomandi. Breytingin nær til örvandi lyfja, m.a. Concerta, Rítalín og Equasym en þessi lyf verða eftir 1. júlí eingöngu afgreidd ef framvísað er gildu lyfjaskírteini frá Sjúkratryggingum Íslands. Notendum lyfjanna er bent á að skírteinin þarf að endurnýja reglulega, en gildistími þeirra er mest átján mánuðir.

Stelpur í stuði - Laus pláss

Enn eru laus pláss í sumarbúðirnar Stelpur í stuði í Vindáshlíð. Flokkurinn er ætlaður 10 til 12 ára stelpum með ADHD. Skráning fer fram á vef KFUM.

Gauarflokkur í Vatnaskógi - Nokkur pláss laus

Enn eru nokkur pláss laus í Gauraflokki sumarbúðanna í Vatnaskógi dagana 8. til 12. júní. Flokkurinn er ætlaður strákum á aldrinum 10-12 ára með ADHD og skyldar raskanir.