ADHD og ég - sjálfsstyrkingarnámskeið 10-12 ára strákar

Nú fer hver að verða síðastur til að skrá sig á ADHD og ég fyrir stráka á aldrinum 10.-12. sem fer fram helgina 25.-26. febrúar Hvernig birtist ADHD hjá mér og hvernig get ég byggt á styrkleikum mínum til að öðlast aukna færni eða læra nýja? Á námskeiðinu er farið yfir birtingarmyndir ADHD og þátttakendur læra leiðir til að kortleggja hvernig þær birtast hjá þeim. Með auknum skilningi eykst getan til að finna hvaða styrkleikar þeir hafa og hvaða þætti þarf að styrkja, t.d. félagsfærni, tilfinningastjórnun og jákvæðari sjálfsmynd.

Lifið með ADHD - Sólveig Ásgrímsdóttir

Þrettándi þáttur af Lífinu með ADHD er kominn í hús en að þessu sinni settist Sólveig Ásgrímsdóttir, sálfræðingur niður með Guðna Rúnari Jónassyni verkefnastjóra ADHD samtakanna og ræddi málefni sem er Sólveigu nærri en það er staða eldri borgara með ADHD og athuganir sem hún hefur verið að fást við tengt efninu. Þáttinn er hægt að nálgast á eftirfarandi stöðum; Buzzsprout https://www.buzzsprout.com/1922294/12029483 Spotify https://open.spotify.com/episode/1XuoZHd1qEMVcHYUdMqXX4?si=zyeZEMoJQ8qEQSzJaMfpYQ

Grunnskólinn og ADHD

Fjarnámskeiðið sem fer fram 28. Janúar er fyrir kennara og leiðbeinendur í grunnskólum um birtingarmyndir ADHD og úrræði sem virka í kennslu, samskiptum og starfi. Farið verður yfir birtingamyndir ADHD í skólanum, skipulag kennslu, tól og tæki sem nýtast í kennslu. Kenndar verðar aðferðir um hvernig draga má úr óæskilegri hegðun og styrkja æskilega hegðun með því að byggja á styrkleikum nemandans. Samskipti, samvinna og samræmd viðbrögð þeirra sem koma að nemendum með ADHD geta skipt sköpum. Farið er yfir leiðir til að eiga farsæl samskipti milli skóla og heimilis. Hvað er ADHD fókus og hvernig getur kennarinn aðstoðað nemendur við að finna sinn fókus. Fyrirlesari Jóna Kristín Gunnarsdóttir grunnskólakennari og hegðunarráðgjafi. Dagssetning: 28. janúar laugardagur kl.11:00 -15.00 Frekari upplýsingar og skráning: https://www.adhd.is/is/namskeid-og-spjallafundir/kennsla-og-adhd-fyrir-grunnskolakennara-og-leidbeinendur

Síðustu forvöð að skrá sig á Leiksskólinn og ADHD

Síðustu forvöð að skrá sig á Leiksskólinn og ADHD Nú í janúar standa ADHD samtökin fyrir vefnámskeiði sem er ætlað leikskólakennurum og öðru starfsfólki leikskóla sem vinna með börnum þar sem grunur leikur á ADHD eða greining liggur fyrir. Starfsfólk Frístundar í grunnskólum er einnig hvatt til að nýta sér þetta námskeið því námskrá leikskóla, þar sem áhersla er á nám í gegnum leikinn, er mjög líkt ákjósanlegu fyrirkomulagi Frístunda. Námskeið þetta gefur þátttakendum tækifæri á að efla þekkingu sína á ADHD og þeim eiginleikum og áskorunum sem því getur fylgt. Farið verður m.a. yfir skipulag kennslu, tól og tæki sem nýtast í kennslu og kenndar verða aðferðir sem geta dregið úr óæskilegri hegðun og styrkja æskilega hegðun með því að byggja á styrkleikum nemandans. Samskipti, samvinna og samræmd vinnubrögð sem koma að nemendum með ADHD geta skipt sköpum. Farið verður yfir leiðir til að eiga farsæl samskipti milli heimilis og skóla. Þess ber að geta að það sem virkar fyrir nemendur með ADHD virkar í flestum tilfellum fyrir aðra og því er fólk hvatt til að sækja sér þetta námskeið. Fyrirlesari: Katrín Ruth Þorgeirsdóttir, Ráðgjafarþroskaþjálfi og Hegðunarráðgjafi. Dagssetning: 21. janúar laugardagur kl.10:00 -14.00

ADHD og fæðuvenjur

Hvernig hefur ADHD áhrif á það hvernig við nærum okkur, og hvað getum við gert til að stuðla að góðum fæðuvenjum? Heiðdís Snorradóttir hjá Endurnæringu, næringarfræðingur MSc. með áherslu á lýðheilsu, fer yfir hvernig ADHD hefur áhrif á fæðuvenjur. Sem dæmi, það að gleyma að borða yfir daginn, getur leitt til þess að gripið er til næringarsnauðs matar seinnipart dags, sem veitir einungis skammvinna vellíðan en stendur ekki með okkur til lengri tíma. Fundurinn verður haldinn í Seljakirkju, Hagaseli 40. Þann 24. Janúar næstkomandi og hefst klukkan 19:30. Heitt á könnunni. Fundurinn verður einnig sendur út í streymi á lokaðri facebook síðu sem er opin fyrir skráða meðlimi samtakanna. Skráðir meðlimir geta nálgast streymið hér. https://www.facebook.com/groups/adhdibeinni/ Hægt er að skrá sig á Facebook síðu til að fá áminningu um viðburðinn: https://fb.me/e/3dGsQLeAe Verið velkomin á fræðslufundinn!

Rafíþróttir fyrir stráka með ADHD

Örfá sæti laus á rafíþróttanámskeið Fylkis og ADHD samtakanna fyrir stráka sem hefst 9. Janúar. Um er að ræða kynningarnámskeið í Rafíþróttum fyrir 12-17 ára stráka með ADHD. Æfingatímabilið er frá 9. janúar til 1. febrúar, átta skipti alls. Æfingar fara fram tvisvar sinnum í viku og eru æfingarnar í 90 mínútur í senn. Á æfingum hjá Rafíþróttadeild Fylkis er lögð áhersla á jákvæða tölvuleikjaspilun, líkamlega og andlega heilsu og liðsheild. Iðkendur hita upp og stunda líkamlegar hreyfingu, læra heilbrigða spilunarhætti og vinna saman sem lið. Fylkir sér fyrir öllum æfingatækjum, leikjum og aðgöngum en þátttakendum er velkomið að spila aðra leiki eða skrá sig inn á sína aðganga. Hámark eru 10 í hverjum æfingahóp. Námskeiðin fara fram í rafíþrótta aðstöðu Fylkis, Norðlingabraut 12. Við hvetjum forráðamenn til þess að vera meðvitaðir um aldursviðmið PEGI. Skráning á æfingar er á ábyrgð forráðamanna og við skráningu er forráðamaður að senda samþykki sitt við því að iðkandinn spili þann leik sem hann hefur verið skráð á æfingar fyrir. Frekari upplýsingar og skráningu er hægt að nálgast hér á heimasíðu ADHD samtakanna; Hópur 1: https://www.adhd.is/is/namskeid-og-spjallafundir/rafithrottir-fyrir-straka-med-adhd-12-17-ara-hopur-1 Hópur 2: https://www.adhd.is/is/namskeid-og-spjallafundir/rafithrottir-fyrir-straka-med-adhd-12-17-ara-hopur-2

ADHD for English speaking adults

Are you starting out your adhd journey? Have you been told by friends and family that you or your children might have ADHD, or thought so for a long time? How do you go about getting a diagnosis in Iceland? These questions and more can be answered in the information meeting about ADHD for English speaking that will be held on the 16th of january. The meeting starts with a short lecture and then the floor will be opened up for questions. The meeting is at the ADHD headquarters at Háaleitisbraut 13 on the 4th floor and will start at 20:00 sharp.

Rafíþróttir fyrir stelpur með ADHD

Nú er að verða síðustu forvöð að skrá sig á rafíþróttanámskeið Fylkis og ADHD samtakanna fyrir stelpur sem hefst 10. Janúar. Um er að ræða kynningarnámskeið í Rafíþróttum fyrir 12-17 ára stelpur með ADHD. Æfingatímabilið er frá 10. janúar til 2. febrúar, átta skipti alls. Æfingar fara fram tvisvar sinnum í viku og eru æfingarnar í 90 mínútur í senn. Á æfingum hjá Rafíþróttadeild Fylkis er lögð áhersla á jákvæða tölvuleikjaspilun, líkamlega og andlega heilsu og liðsheild. Iðkendur hita upp og stunda líkamlegar hreyfingu, læra heilbrigða spilunarhætti og vinna saman sem lið. Fylkir sér fyrir öllum æfingatækjum, leikjum og aðgöngum en þátttakendum er velkomið að spila aðra leiki eða skrá sig inn á sína aðganga. Hámark eru 10 í hverjum æfingahóp. Námskeiðin fara fram í rafíþrótta aðstöðu Fylkis, Norðlingabraut 12. Við hvetjum forráðamenn til þess að vera meðvitaðir um aldursviðmið PEGI. Skráning á æfingar er á ábyrgð forráðamanna og við skráningu er forráðamaður að senda samþykki sitt við því að iðkandinn spili þann leik sem hann hefur verið skráð á æfingar fyrir.

Jólakveðja ADHD samtakanna

ADHD samtökin óska félagsfólki og landsmönnum nær og fjær gæfuríkra jóla og farsæls komandi árs. Þökkum fyrir stuðninginn og samstarfið á árinu.

Erindi af málþingi ADHD samtakanna 2022

Síðastliðinn október, sem er ADHD vitundarmánuður á alþjóðavísu, héldu ADHD samtökin árlegt málþing sitt og að þessu sinni var umfjöllunarefnið biðlistar og sá gríðarlegi samfélagslegi kostnaður sem þeim fylgja. Nú í lok árs 2022 eru hátt í 900 börn sem bíða eftir greiningu og yfir 1.200 fullorðnir sem gerir það að verkum að biðtíminn getur orðið allt upp í tvö til þrjú ár. Mörg gríðarlega áhugaverð erindi voru á málþinginu og hér má finna samantekt á þeim. Ávarp - Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna https://youtu.be/DKauu18V3SQ?t=218 Setning málþings - Heiða Björg Hilmisdóttir, formaður Sambands íslenskra sveitarfélaga https://youtu.be/DKauu18V3SQ?t=539 ADHD er ekki til - Haraldur Erlendsson geðlæknir https://youtu.be/DKauu18V3SQ?t=1503 Viljum við betra líf? Um verndandi áhrif greininga, meðferðar og lyfja vegna ADHD. Anna Tara Andrésdóttir doktorsnemi https://youtu.be/DKauu18V3SQ?t=3284 Geðheilsuteymi ADHD fullorðinna - Elvar Daníelsson, yfirlæknir https://youtu.be/DKauu18V3SQ?t=7460 Reynslusaga - Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, alþingiskona https://youtu.be/DKauu18V3SQ?t=9364