19.04.2023
Síðastliðinn fimmtudag héldu ADHD samtökin uppá 35 ára afmæli sitt með pompi og prakt í Gyllta salnum á Hótel Borg. Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra ávarpaði gesti og tónlistarmaðurinn Eyþór Ingi tróð upp. Grínarinn og ísgerðarkonan Anna Svava Knútsdóttir sá um að stýra viðburðinum með glæsibrag.
Katrín Jakobsdóttir og Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna veittu síðan eftirtöldum aðilum heiðursviðurkenningu fyrir ómetanlegt framlag þeirra í þágu fólk með ADHD. Viðurkenninguna hlutu Matthías Kristiansen og Heidi Kristiansen, Ingibjörg Karlsdóttir, Elín Hoe Hinriksdóttir og Björk Þórarinsdóttir heitin. Ingibjörg Karlsdóttir tók á móti viðurkenningu Matthíasar og Heidi í fjarveru þeirra og Alexander Kristinsson tók á móti viðurkenningu fyrir hönd móður sinnar Bjarkar Þórarinsdóttur en öll voru þau í forystu samtakanna og bera mikla ábyrgð á velgengni þeirra í dag.
Afmælisdagurinn er þó aðeins hluti af stærri dagskrá á þessu afmælisári en í sumar munu samtökin bjóða félagsfólki til veislu í Fjölskyldu- og Húsdýragarðinum. Auk þess standa ADHD samtökin fyrir alþjóðlegri ráðstefnu 26. og 27. október undir yfirskriftinni „Betra líf með ADHD“. Fyrir Páska gáfu samtökin einnig út afmælisrit sem hægt er að nálgast hér. https://www.adhd.is/static/files/Frettabref/pdf/afmaelisrit.pdf
Hér er hægt að skoða myndabanka frá viðburðinum: https://www.picdrop.com/ellephoenix/XuP44nPxBr
13.04.2023
Vertu Snillingur! Í tilefni af 35 ára afmæli ADHD samtakanna fá allir nýjir Snillingar stuttermabol að gjöf með mynd sem hönnuð er af Hjalta Parelíus myndlistarmanni fyrir ADHD samtökin. Skráðu þig núna og gerum ADHD samtökin enn öflugari á 35 ára afmælisárinu!
05.04.2023
Þann 7. apríl verða 35 ár liðin frá stofnun ADHD samtakanna. ADHD samtökin munu með ýmsum hætti fagna tímamótunum undir yfirskriftinni Betra líf með ADHD í 35 ár. Næstu daga mun afmælisriti ADHD samtakanna verða dreift um allt land, stútfullu af fróðleik um starfsemi samtakanna ásamt áhugaverðum viðtölum við fjölda einstaklinga.
Um leið og við óskum þér og þínum til hamingju með 35 ára starfsafmælið gefum við formanni samtakanna, Vilhjálmi Hjálmarssyni orðið...
31.03.2023
Á þessum spjallfundi munu Anna Elísa Gunnarsdóttir félagsráðgjafi MA, og eiginmaður hennar, Arnór Heiðarsson aðstoðarskólastjóri, deila reynslu sinni af ADHD í parasambandinu.
Ýmsum spurningum verður velt upp eins og:
-Hvaða áskoranir mæta pari þegar annar aðilinn er með ADHD en hinn ekki?
-Hvernig er hægt að takast á við þær áskoranir til að eiga farsælt parasamband?
Farið verður yfir hvernig einkenni ADHD geta haft áhrif á pör þar sem annar aðilinn er með ADHD en hinn ekki, hverjar helstu áskoranirnar í samskiptum og verkaskiptingu heimilisins eru og hvernig hægt er að takast á við þær áskoranir. Í lok fundarins verða opnar umræður.
Fræðslan er einkum ætluð pörum þar sem annar aðilinn er með ADHD en hinn ekki, og eru pör hvött til að mæta saman.
Fræðslufundurinn fer fram 9. maí kl. 20:00 - 21.00 í húsakynnum ADHD samtakanna Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík á fjóðru hæð. Heitt á könnunni. Einnig er honum streymt á ADHD í beinni á Facebook fyrir skráða meðlimi samtakanna.
Hægt er að skrá sig á viðburðinn hér til að fá áminningu um hann: https://fb.me/e/2mWQeA7Vz
Hér er tengill til að skrá sig í samtökin: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd
Verið velkomin á fræðslufundinn!
31.03.2023
Nú eru síðustu forvöð að skrá sig á Áfram Stelpur! námskeiðið sem er nú í apríl, námskeiðið er það síðasta fyrir sumarið og verður ekki aftur fyrr en í haust. Kennt er í fjórum lotum miðvikudagana 12, 19, 26 apríl og 3. maí frá 17:00 og 19:30.
Markmið námskeiðs:
Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem einstaklingar með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd. Námskeiðinu er ætlað að fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.
Námskeiðið verður í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir sálfræðingur og Elín H. Hinriksdóttir sérkennari.
20.03.2023
Á morgun þriðjudaginn 21. mars ætla Tinna Tómasdóttir og Lovísa Jóhannsdóttir talmeinafræðingar að fræða okkur um málþroskaröskun barna. Málþroskaröskun DLD er dulin skerðing og kemur snemma fram hjá börnum og viðhelst fram á fullorðinsár.
Málþroskaröskun DLD er algeng og sýna rannsóknir að eitt af hverjum 14 börnum glími við einkenni DLD. Málþroskaröskun DLD kemur oft fram samhliða öðrum röskunum t.d. ADHD, lesblindu eða námserfiðleikum. Einkenni DLD og ADHD eru oft svipuð og skarast og því getur stundum verið erfitt að átta sig á hvað er hvað. Vonumst til að sjá sem flesta – málþroskaröskun DLD og ADHD viðkemur okkur öllum.
Hægt er að skrá sig á viðburðinn hér til að fá áminningu um hann: https://fb.me/e/12zVpYrS6
Hér er tengill til að skrá sig í samtökin: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt
20.03.2023
Er erfitt að fá barnið til að fylgja fyrirmælum og skapa ramma og rútínu? Börn með ADHD eiga iðulega erfitt með að skilja og fylgja eftir munnlegum fyrirmælum en hafa þess í stað sjónræna styrkleika. Þegar þjálfa á daglegar venjur og fá barnið til að fylgja þeim getur sjónrænt skipulag komið að góðum notum.
Katrín Ruth Þorgeirsdóttir ráðgjafaþroskaþjálfi og hegðunarráðgjafi fer yfir nokkrar aðferðir og leiðir sem hægt er að nota til að kenna, þjálfa og styðja við daglegar rútínur.
Fundurinn fer fram nú á miðvikudaginn, 22. mars næstkomandi og hefst klukkan 20:00. Fundurinn fer fram í austurrými Vallaskóla, Sólvöllum 2. Gengið inn af Engjavegi
Hér er tengill til að skrá sig í samtökin: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt
20.03.2023
Við minnum á aðalfund ADHD samtakanna fta. í kvöld, miðvikudaginn 19. apríl kl. 20:00. Aðalfundurinn fer fram í hátíðarsal ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð - sjá nánar meðfylgjandi dagskrá. Ein lagabreytingartillaga liggur fyrir fundinum um formlega innleiðingu á nýju merki félagsins í lögin. Áhugasamir eru hvattir til að skrá sig á Facebook viðburð aðalfundarins svo áætla megi mætingu.
17.03.2023
ADHD og fjármál - nýtt fjarnámskeið með Valdísí Hrönn Berg, fjárhagsmarkþjálfa verður haldið 22 og 29 apríl nk - stutt námskeið með aðferðum sem virka fyrir fólk með ADHD.
Skráningu lýkur á næstu dögum... afsláttur fyrir félagsfólk ADHD samtakanna.
13.03.2023
Síðustu forvöð til þess að skrá sig á fræðslunámskeið fyrir aðstandendur barna með ADHD frá 6 til 12 ára fer fram helgarnar 25. mars og 1. apríl. Kennslan fer fram á milli 10:00 og 15:00. Námskeiðið er í húsakynnum ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð en fjarfundarbúnaður er einnig í boði fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á ADHD gróskunni og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nákomna. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.