Áfram veginn - Fjarnámskeið fyrir fullorðna með ADHD

Nú eru síðustu forvöð til þess að skrá sig á Áfram veginn. Áfram veginn er fjarnámskeið fyrir fullorðna með ADHD. Námskeið sem leggur áherslu á styrkleika ADHD. Unnið er að því að auka skilning hvers og eins á sínu ADHD, hvernig hægt er að auka stjórn og lífsgæði í daglegu lífi. Námskeiðið fer fram í gegnum fjarfundarbúnaðinn ZOOM laugardagana 5. og 12. nóvember 2022 frá klukkan 11. til 13. báða daganna.

ADHD og konur - Opinn spjallfundur í Grófinni

ADHD og konur - Opinn spjallfundur í Grófinni, Hafnarstræti 95, 4 hæð, 24. október kl. 17:00. Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi, námskeiðahaldari og stjórnarkona í ADHD samtökunum ætlar að koma og fræða okkur um ADHD og konur sem er hennar hugðarefni. Gríðarlegur fjöldi kvenna hefur ekki fengið greiningu á ADHD og er það ein af ástæðunum fyrir því að þær eru einn stærsti hópurinn sem tekst á við kulnun í dag. Hvað er til ráða og hvar á að byrja. Allir eru velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Það verður heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt. Skráðu þig á Facebook á viðburð spjallfundarins og fáðu áminningu. Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum um líf með ADHD. Hlökkum til að sjá ykkur sem flestar! ADHD Norðurland

Fræðslufundur á Grundarfirði

Fræðsla fyrir aðstandendur Hvað er ADHD og hvernig birtist það. Sífellt fleiri fá ADHD greiningu og skilningur er sterkasta vopnið okkar til að bæta líðan og sjálfsmynd þeirra. Jóna Kristín Gunnarasdóttir grunnskólakennari, kennslu- og hegðunarráðgjafi ræðir um hvernig við getum stutt við og kennt okkur, börnunum, eða nánum fjölskyldumeðlimum að finna sýna styrkleika og byggja upp sterka sjálfsmynd.

ADHD - greining, meðferð og lyf bjarga lífum!

Október er alþjóðlegur vitundarmánuður fólks með ADHD og munu ADHD samtökin standa fyrir fjölbreyttum viðburðum til að vekja athygli á málefnum fólks með ADHD. Í ár verður athyglinni sérstaklega beint að mikilvægi greininga, meðferðar og lyfja fyrir fólk með ADHD og því ófremdarástand sem í þeim málum ríkir hér á landi, en biðtími eftir þessari mikilvægu þjónustu er um tvö ár. Með bréfi þessu viljum við vekja athygli þína á áherslum ADHD samtakanna og bjóða þér á málþing samtakanna þann 27. okt - þú ert númer 1250 í röðinni...

Þú ert númer 1250 í röðinni... Málþing ADHD samtakanna.

Þú ert númer 1250 í röðinni... Opið málþing ADHD samtakanna um afleiðingar ómeðhöndlaðs ADHD, biðlista og samfélagslegan kostnað, fimmtudaginn 27. október kl 13:00 á Grand hotel.

Fræðslufundur í Þorlákshöfn um ADHD og lyf

Fræðslufundur í þorlákshöfn um ADHD og lyf. Mikil umræða hefur verið um notkun lyfja og ADHD á liðnum misserum og víða má greina fordóma og vanþekkingu um þessi mál. Á fundinum verður farið yfir virkni helstu lyfja sem notuð eru vegna ADHD, rætt um mögulegar aukaverkanir og reynt að svara helstu spurningum sem brenna á vörum fundargesta. Skráðu þig á Facebook viðburð spjallfundarins og fáðu áminningu: https://www.facebook.com/events/1299503754186671/?ref=newsfeed

ADHD Reykjavík 8. nóvember Fræðslufundur - ADHD og konur

Fræðslufundur um ADHD og konur. Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi, námskeiðahaldari og stjórnarkona í ADHD samtökunum ætlar að koma og fræða okkur um ADHD og konur sem er hennar hugðarefni. Gríðarlegur fjöldi kvenna hefur ekki fengið greiningu á ADHD og er það ein af ástæðunum fyrir því að þær eru einn stærsti hópurinn sem tekst á við kulnun í dag. Hvað er til ráða og hvar á að byrja?

Endurskinsmerki ADHD samtakanna - Athygli, já takk!

Árleg fjáröflun ADHD samtakanna með sölu endurskinsmerkja eftir Hugleik Dagsson er hafin. Nú er rétti tíminn til að næla sér í endurskinsmerki fyrir fjölskylduna, enda skammdegið að skella á. Athygli - já takk!

Spjallfundur 11. október - ADHD og bjargráð

Þá er komið að öðrum spjallfundi ADHD Samtakanna í Reykjavík, þetta haustið. Hvort sem þú ert ógreindur, nýgreindur eða langgreindur þá er þessi fundur fyrir þig. Tilgangurinn er að spjalla saman um reynslu okkar af ADHD, og deila bjargráðum sem við notum í lífinu.Fundargestum er frjálst að koma með spurningar, leita ráða og tala um sín hugðarefni. Fundurinn verður í húsakynnum ADHD Samtakanna, Háaleitisbraut 13, á fjórðu hæð. Húsið opnar 19:45 og er opið öllum, heitt á könnunni.

Ársfundur ADHD Norðurland á Akureyri

Ársfundur ADHD Norðurland á morgun, 1. október kl. 13:00-14:00 í húsakynnum Grófarinnar Hafnarstræti 95, 4. hæð, 600 Akureyri. Fjölmennum, tökum með okkur gesti og stóreflum starfið á Norðurlandi!