Umfjöllun um ADHD samtökin á N4

Umfjöllun um ADHD samtökin er meðal efnis í nýjum þætti sjónvarpsstöðvarinnar N4, "Borgarinn", sem fer í loftið klukkan 18:30 í kvöld.

ADHD-teymi á Landspítalanum lagt niður að óbreyttu

Fréttastofa RÚV greinir frá því að ADHD-teymi á Landspítalanum verði lagt niður að óbreyttu, þar sem fjárveitingar til þess eru alfarið skornar niður í nýju fjárlagafrumvarpi. Í samtali við RÚV segir framkvæmdastjóri geðsviðs Landspítalans brýna þörf fyrir úrræðið.

Spjallfundur fyrir fullorðna í kvöld - Áhættuhegðun og hvatvísi

Minnum á spjallfundinn í kvöld kl. 20:30 miðvikudaginn 2. október fyrir fullorðna. Yfirskrift fundarins er "Áhættuhegðun og hvatvísi". Vilhjálmur Hjálmarsson, leikari og fullorðinn með ADHD leiðir fundinn. Fundurinn verður í húsnæði ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 2.hæð. Allir velkomnir, ókeypis aðgangur!

Afmælisendurskinsmerki ADHD samtakanna kynnt

Magnús Jónsson, leikari og tónlistarmaður fékk fyrsta afmælismerkið afhent. Ellen Calmon, framkvæmdastjóri ADHD nældi merkið í Magnús. Líkt og fyrri ár prýðir merkið teikning eftir Hugleik Dagsson.

Þunglyndi er smitandi: Fyrirlestur Michael Yapko

Bandaríski sálfræðingurinn Michael Yapko heldur athyglisverðan fyrirlestur um þunglyndi, þriðjudaginn 1. október. Fyrirlesturinn ber yfirskriftina „Þunglyndi er smitandi: Félagslegir þættir þunglyndis og mikilvægi þeirra fyrir meðferð og sjálfshjálp“. Fyrirlesturinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. Hann verður haldinn á Háskólatorgi, Háskóla Íslands, í sal 102 og hefst kl 17:30.

Barnageðlækningar á Norðurlandi: Einkastofa opnuð á Akureyri

Páll Tryggvason, barna- og unglingageðlæknir á Akureyri, hefur opnað einkastofu á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Vandinn í barnageðlækningum nyrðra er þó ekki leystur til frambúðar.

Náum áttum hópurinn: Vímuefnamarkaðurinn - hver er staðan?

Við vekjum athygli á fundi sem fjallar um unglinga og vímuefni. Á fyrsta fundi Náum áttum á morgun, miðvikudag 25. september, verður fjallað um vímuefnamál og unglinga. Á fundinum verður sagt frá nýjum rannsóknum á vímuefnaneyslu unglinga og mun Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Rannsóknum og greiningu skýra frá niðurstöðum.

TMF Tölvumiðstöð opnar nýjan vef

TMF Tölvumiðstöð hefur opnað nýja heimasíðu á slóðinni www.tmf.is Auk allra gagnlegu upplýsinganna af gamla vefnum er að finna nýjungar á nýjum vef. Til dæmis hefur verið sett inn skráningarkerfi fyrir námskeið TMF þar sem hægt er að skrá sig og ganga frá greiðslu.

Staða geðlækninga er verulega slæm - Erfitt fyrir fullorðna að fá tíma hjá geðlækni án tilvísunar.

Nánast ógerlegt er fyrir fullorðna að komast að hjá geðlæknum hér á landi að sögn Ellenar Calmon, framkvæmdastjóra ADHD-samtakanna. Morgunblaðið fjallaði um málið föstudaginn 6. september.

ADHD og einelti - Grein formanns ADHD í Fréttablaðinu í dag

Við sem samfélag berum líka ábyrgð á því að fræða börnin okkar um fjölbreytileika mannlífsins, virðingu og tillitsemi, segir formaður ADHD samtakanna í grein um ADHD og einelti.