FJARNÁM/STAÐNÁM: TÍA - Tómstundir - íþróttir - ADHD

FJARNÁM / STAÐNÁM - SKRÁNING STENDUR YFIR! TÍA - tómstundir, íþróttir og ADHD, er nýtt námskeið ADHD samtakanna fyrir þjálfara, tómstundafulltrúa og aðra sem koma að skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi barna, með sérstakri áherslu á þátttöku barna með ADHD. Skráning er hafin en námskeiðið verður haldið 19. maí og 2. júni nk. Námskeiðið er í höndum reynslumikilla fagaðila á sviðinu. Það eru þau Jakob Frímann Þorsteinsson, MA í náms- og kennslufræðum, Vanda Sigurgeirsdóttir MA í uppeldis- og menntunarfræðum og Bóas Valdórsson klínískur sálfræðingur sem hafa veg og vanda að námskeiðinu. Vanda og Jakob starfa við HÍ og hjá KVAN og Bóas starfar sem sálfræðingur við MH. Notið tækifærið og fáið praktíska nálgun á að vinna með öllum hópunum - líka með krökkum með ADHD - í starfi ykkar í sumar

FULLBÓKAÐ! skráð á BIÐLISTA. Skráning stendur yfir á sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur - Áfram stelpur!

Áfram stelpur hefst 19. apríl 2021 ADHD samtökin taka á móti skráningum á fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeiðið – Áfram stelpur! Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fjögur skipti, 2,5 klukkukstundir í senn og verður það haldið 19. og 26. apríl og 3. og 10. maí 2021 (sjá nánar skipulag hér fyrir neðan). Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær! Markmið námskeiðs: Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem einstaklingar með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd. Námskeiðinu er ætlað að fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.

FULLBÓKAÐ! skráð á biðlista. AUKANÁMSKEIÐ - TAKTU STJÓRNINA - námskeið fyrir fullorðna - öll kyn.

AUKANÁMSKEIÐ! á námskeiðið TAKTU STJÓRNINA sem er fyrir fullorðna, bæði kynin og hefst í maí næstkomandi. Skráning er hafin á hið sívinsæla færninámskeið ADHD samtakanna - Taktu stjórnina! sem verður haldið þriðjudagana 18. og 25. maí og 1. og 8. júní 2021 (sjá nánar töflu hér fyrir neðan) Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fjögur skipti, 2 og 1/2 klukkukstund í senn frá kl. 19:30-22:00 alla dagana. Markmiðið er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari. Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær!

Staðnám/fjarnám: Fræðslunámskeið fyrir foreldra barna 13-18 ára með ADHD

SKRÁNING STENDUR YFIR á hið sívinsæla fræðslunámskeið fyrir aðstandendur 13-18 ára barna með ADHD sem haldið verður í húsnæði ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13 í Reykjavík laugardagana 17. apríl og 24. apríl 2021 (sjá skipulag hér fyrir neðan). Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað ADHD er og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi unglinga með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur unglinga með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef nánir aðstandendur geta tekið þátt í námskeiðinu. Þannig verður fjölskylduheildin enn sterkari. Námskeiðið verður haldið í húsakynnum ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð báða dagana. Hægt verður einnig að taka þátt í námskeiðinu í gegnum fjarfundarbúnar og er stofnaður lokaður hópur á Facebook í því tilliti. Því er því ekkert til fyrirstöðu að taka þá hvar á landinu sem þú býrð.

Samskipti foreldra og barna með ADHD - Spjallfundur í Reykjavík

ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund um samskipti foreldra og barna með ADHD miðvikudaginn 3. mars nk. kl. 20:30. Fundurinn verður haldinn í fundarsal ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4.hæð og er ætlaður foreldrum/forráðamönnum barna og öðrum aðstandendum fólks með ADHD og öllu öðru áhugafólki um uppbyggileg og gagnleg samskipti i uppeldi barna. Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræðingur hefur veg og vanda að spjallfundinum og mun hún koma víða við. Í þessum fyrirlestri mun Sólveig meðal annars koma inn á óhlýðnikeðjuna, um samstöðu foreldra, umbunarkerfi, uppbyggileg samtöl og samskipti, hvernig við getum dregið fram góða hegðun og mikið meira. Sólveig hefur lengi starfað innan málaflokksins en hún starfaði fyrst sem skólasálfræðingur og síðar sálfræðingur á BUGL og tók þátt í að byggja upp þjónustu við börn með ADHD þar. Tók síðar við starfi forstöðumanns og sálfræðings á Stuðlum en þangað komu margir unglingar með ADHD. Sólveig hefur lengi sinnt fræðslu á vegum ADHD samtakanna og situr nú í stjórn þeirra. Við mælum með þessum opna fyrirlestri, það er aldrei að vita nema að þú fáir góðar uppeldishugmyndir í kjölfarið!

ADHD og daglegar áskoranir - Spjallfundur í Eyjum

Við minnum á fræðsluna á spjallfundinum seinnipartinn í dag kl. 17:30. Fjölmennið og eigið notalega samverustund saman þar sem málefni ADHD verður í hávegum haft. Heitt á könnunni! ADHD Eyjar og Sigurlaug Vilbergsdóttir, þroskaþjálfi og einhverfuráðgjafi mun fjalla um ADHD og daglegar áskoranir og nefndir erindi sitt „Að vera sunnan við sig“ á spjallfundi sem haldinn verður í Eyjum fimmtudaginn 25. febrúar kl. 17:30 - 19:00. Verður fundurinn haldinn í fundarsalnum á flugvelli Vestmannaeyja (gengið er inn vestanmegin). Sigurlaug mun fjalla um hegðun og líðan einstaklinga og hvernig hún hefur áhrif allt daglegt líf. Álag getur birst við ýmsar aðstæður og við misjöfn tilefni. Aðlögunarfærni og þrautseigja hafa mikil áhrif á getu til að takast á við misjöfn verkefni í lífinu. Skipulag og fyrirsjáanleiki tryggja best það öryggi sem einstaklingur þarf til að ná árangri við dagleg verkefni. Einnig þarf hver og einn að nýta styrkleika sína og áhugasvið til að tapa aldrei gleðinni. Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum um líf með ADHD. Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir og heitt á könnunni!

ADHD og lyf - opinn spjallfundur á Egilsstöðum

ADHD Austurland halda opinn spjallfund á Egilsstöðum um ADHD og lyf, miðvikudaginn 24. febrúar kl. 20:00. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsúm og sóttvarnarreglur leyfa og fer hann fram á Austurbrú. Mætum og bjóðum vinum - byggjum upp öflugt ADHD samfélag á Austurlandi.

Heillandi hugmyndir eða óþolandi þörf fyrir að gera hlutina öðruvísi?

Við minnum á spjallfundinn í kvöld kl. 20:30. Raunheimar / Netheimar - þú velur. ATH. Einungis 20 manns komast í hús vegna núgildandi sóttvarnarreglna. Vertu með! ADHD samtökin halda opinn spjallfund um ADHD og atvinnu en þá mun Aðalheiður Sigursveinsdóttir framkvæmdastjóri fjalla um styrkleika fólks með víðhygli (ADHD) sem eru fjölbreyttir og margslungnir. Í þessum fyrirlestri mun Aðalheiður ræða um birtingamyndir þessara styrkleika og nokkra lykla sem geta nýst bæði starfsmönnum og stjórnendum svo hæfnisþættir og styrkleikar tengdir ADHD fái notið sín enn betur á vinnustaðnum. Við mælum með þessum fyrirlestri, það er aldrei að vita nema að þú fáir góða hugmynd í kjölfarið.

Pop it - push up fiktvörur í miklu úrvali

Hinar geysi vinsælu pop it - push up fiktvörur eru nú loksins fáanlegar í vefverslun ADHD samtakanna. Mikið úrval forma og lita og verðið hvergi lægra fyrir skuldlausa félagsmenn ADHD samtakanna. Sendum um allt land.

TÍA - nýtt námskeið um Tómstundir, Íþróttir og ADHD

TÍA - Tómstundir, íþróttir og ADHD er nýtt námskeið ADHD samtakanna fyrir þjálfara, tómstundafulltrúa og aðra sem koma að skipulögðu íþrótta- og tómstundastarfi barna, með sérstakri áherslu á þátttöku barna með ADHD. Umsjónarmenn eru sérfræðingarnir Vanda Sigurgeirsdóttir, Jakob Frímann Þorsteinsson og Bóas Valdórsson. Skráning er hafin en námskeiðið verður haldið 3. og 23. mars nk.