ADHD og eldra fólk - spjallfundur í beinu streymi

ADHD og eldra fólk - opinn spjallfundur í Reykjavík, í kvöld, miðvikudaginn 21. apríl kl. 20:30. Skuldlausir félagsmenn ADHD samtakanna geta fylgst með í beinu streymi í facebook hopnum ADHD í beinni! Öll þekkjum við þegar eldra fólk er sagt vera með elliglöp, sé farið að kalka eða ekki með sjálfu sér... En hvað með ADHD, einhverfu eða aðrar raskanir...? Sólveig Ásgrímsdóttir, sálfræðingur og ritari ADHD samtakanna mun á fundinum fjalla um rannsóknir sínar á ADHD meðal eldra fólks, en Sólveig hefur verið brautryðjandi í umfjöllun um ADHD á Íslandi og m.a. gefið út bókina Ferðalag í flughálku, um ADHD og unglinga, sem nýverið fékk Hvatningarverðlaun ÖBÍ.

Seigla, bjargráð og verkefni fullorðinna með ADHD - spjallfundur á Egilsstöðum

Munið spjallfundinn á morgun - ADHD Austurland býður upp á opinn fyrirlestur á spjallfundi með Tinnu Halldórsdóttur, verkefnastjóra hjá Austurbrú. Fjallað verður um seiglu, bjargráð og verkefni fullorðinna með ADHD. Fundurinn fer fram í Vonarlandi á Egilsstöðum, miðvikudaginn 21. apríl kl. 20:00. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsrúm leyfir!

Lífið með ADHD - Móðir barns með ADHD

Erfiðleikar barns með ADHD hafa ekki einungis áhrif á það heldur einnig umhverfið sem barnið lifir og hrærist í dags daglega. Í þessum þætti af Lífið með ADHD fáum við móður barns með ADHD sem glímir m.a. við það að beita ofbeldi. Við heyrum hennar upplifun og reynslu á því að vera móðir í þessum aðstæðum, samskipti við skólayfirvöld og hvað mætti betur fara. Þáttinn í heild má nálgast hér að neðan og í öllum helstu hlaðvarpsveitum.

Aðalfundur ADHD samtakanna

Við minnum á aðalfund ADHD samtakanna í kvöld, fimmtudaginn 29. apríl kl. 20:00. Dagskrá verður í samræmi við lög samtakanna.

ADHD og svefn barna - spjallfundur í beinni!

Í kvöld, miðvikudaginn 7. apríl kl. 20:30-22:00 stýrir Dr. Drífa B. Guðmundsdóttir, sálfræðingur umræðum um ADHD og svefnmál barna. Spjallfundinum verður streymt beint í lokaðann hóp skuldlausra félagsmanna ADHD samtakanna ADHD í beinni: https://www.facebook.com/groups/613013522504922

ADHD greiningarferli barna og fullorðinna

ADHD Austurland býður upp á opinn fyrirlestur á spjallfundi með þeim Sigurlínu H. Kjartansdóttur sálfræðingi og Steinunni Ástu Lárusdóttur sálfræðingi. Fjallað verður um ADHD greiningar hjá fullorðnum og börnum. Fundurinn fer fram á REYÐARFIRÐI að Austurbrú, Búðareyri 1. miðvikudaginn 24. mars kl. 20:00. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsúm leyfir!

Samskipti foreldra og barna með ADHD - Spjallfundur á Akureyri

ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund um samskipti foreldra og barna með ADHD á Akureyri, á morgun 23. mars nk. kl. 17:30. Fundurinn verður haldinn í í Grófinni, Hafnarstræti 95 og er ætlaður foreldrum/forráðamönnum barna og öðrum aðstandendum fólks með ADHD og öllu öðru áhugafólki um uppbyggileg og gagnleg samskipti i uppeldi barna. Mætum og tökum með okkur gesti.

Áhrif ADHD á sjálfsmynd barna - VESTMANNAEYJAR

*Við minnum á spjallfundinn í kvöld! ADHD Eyjar halda opinn spjallfund í Vestmannaeyjum um Áhrif ADHD á sjálfsmynd barna, fimmtudaginn 18. mars kl. 17:30-19:00. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsúm leyfir og fer hann fram í fundarsalnum á flugvelli Vestmannaeyja (gengið er inn vestanmegin). Ragnheiður Sæmundsdóttir sálfræðingur mun í erindi sínu fjalla um áhrif ADHD á sjálfsmynd barna og ungmenna og með hvaða hætti hægt er að hafa uppbyggileg og jákvæð áhrif á þróun sjálfsmyndar hjá barni með ADHD greiningu. Umfjöllunin miðar einnig að styðjandi og hvetjandi þáttum í nærumhverfi barns sem stuðla að góðum samskiptum og tengslamyndun gagnvart jafnöldrum, hvetjandi námsumhverfi og góðri geðheilsu.

ADHD og lyfjamálin - Spjallfundur í Reykjavík /streymt beint

ADHD samtökin halda opinn spjallfund í Reykjavík um ADHD og lyf, miðvikudaginn 17. mars kl. 20:30. Vilhjálmur Hjálmarsson varaformaður ADHD samtakanna heldur framsögu. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsúm leyfir og fer hann fram í húsakynnum ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Fundinum verður jafnframt streymt beint til skuldlausra félagsmanna á ADHD í beinni. Verið velkomin í fræðslu um lyfjamálin í tengslum við ADHD.

Nýjar vörur í vefverslun ADHD samtakanna.

Úrvalið af ADHD vörum er stöðugt að aukast í vefverslun ADHD samtakanna. Ný pop it - push up form, fikt-púðar, fikt-lyklakippur, fikt-teningar og nýjar útrásarteygjur fyrir hendur, stóla og borð. Félagsmenn ADHD samtakanna fá allt að 25% afslátt - sendum hvert á land sem er.