Æskilegt er að umsækjendur hafi ADHD - spjallfundur á Akureyri.

ADHD Norðurland heldur opinn spjallfund um styrkleika stjórnenda og starfsfólks með ADHD, í kvöld, fimmtudaginn 20. febrúar kl. 20:00. Fundurinn er ætlaður fólki með ADHD, stjórnendum og samstarfsfólki einstaklinga með ADHD. Fjölmennum og tökum gesti.

ADHD fjölskyldan - opinn spjallfundur í Reykjavík.

ADHD fjölskyldan. ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund, um fjölskyldulíf fólks með ADHD, í kvöld, miðvikudaginn 19. febrúar kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal samtakanna að Háaleitisbraut 13 - IV. hæð og er ætlaður aðstandendum barna með ADHD, fólki með ADhd og öllu áhugafólki um betra líf með ADHD.

Ókeypis vefnámskeið - ADHD, sex, intimacy and relationships.

Vegna aðildar að ADHD Euorpe geta ADHD samtökin nú boðið áhugasömum að taka þátt í ókeypis námskeiði á netinu um "ADHD, sex, intimacy and relationships." Námskeiðið hefst kl. 16:00 að íslenskum tíma, þriðjudaginn 11. febrúar.

Verkefnið Betra líf með ADHD fær veglegan styrk.

Heilbrigðisráðherra, Svandís Svavarsdóttir veitti ADHD samtökunum veglegan styrk til að efla námskeiðahald fyrir fólk með ADHD.

Hvar er draumurinn? Opinn spjallfundur um svefn barna með ADHD

ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund, um svefn barna með ADHD á morgun, 5. febrúar kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal samtakanna að Háaleitisbraut 13 - IV. hæð og er ætlaður aðstandendum barna með ADHD og öllu áhugafólki um betra líf með ADHD.

Aðstandendur 6-12 ára barna með ADHD - loka frestur.

Nú fer hver að verða síðastur að skrá sig. Hið sívinsæla fræðslunámskeið ADHD samtakanna, fyrir aðstandendur 6-12 ára barna með ADHD hefst laugardaginn 8. febrúar nk. Hægt er að taka þátt hvar sem er á landinu í gegnum fjarfundarbúnað og félagsmenn ADHD samtakanna fá verulegan afslátt af þátttökugjöldum.

Námskeið fyrir fullorðna með ADHD - skráningu er að ljúka!

Skráningu á er að ljúka á Taktu stjórnina - fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir fullorðna með ADHD. Námskeiðið hefst 4. febrúar nk. Skuldlausir félagsmenn ADHD samtakanna og fjölskyldur þeirra njóta sérkjara.

Lyf og börn með ADHD - opinn spjalfundur

ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund, um lyf og börn með ADHD, í kvöld, miðvikudaginn 29. janúar nk. kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal samtakanna að Háaleitisbraut 13 - IV. hæð og er ætlaður aðstandendum barna með ADHD og öllu áhugafólki um betra líf með ADHD.

ADHD og náin sambönd - opinn spjallfundur á Akureyri

ADHD Norðurland heldur opinn spjallfund um ADHD og náin sambönd í kvöld, fimmtudaginn 30. janúar kl. 20:00. Fundurinn er ætlaður fólki með ADHD og sambúðarfólki einstaklinga með ADHD. Fjölmennum!

Skráning hafin á námskeið ADHD samtakanna

Skráning er hafin á vinsælustu námskeið ADHD samtakanna, sem haldin verða á næstunni. Um er að ræða fjögur námskeið, sem öll hafa hlotið mikið lof þátttakenda. Félagsmenn ADHD samtakanna njóta sérstakra afsláttarkjara á öllum námskeiðunum, en fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fystur kemur fyrstur fær.