Barnageðlækningar á Norðurlandi: Einkastofa opnuð á Akureyri

Páll Tryggvason, barna- og unglingageðlæknir á Akureyri, hefur opnað einkastofu á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Vandinn í barnageðlækningum nyrðra er þó ekki leystur til frambúðar.

Náum áttum hópurinn: Vímuefnamarkaðurinn - hver er staðan?

Við vekjum athygli á fundi sem fjallar um unglinga og vímuefni. Á fyrsta fundi Náum áttum á morgun, miðvikudag 25. september, verður fjallað um vímuefnamál og unglinga. Á fundinum verður sagt frá nýjum rannsóknum á vímuefnaneyslu unglinga og mun Margrét Lilja Guðmundsdóttir frá Rannsóknum og greiningu skýra frá niðurstöðum.

TMF Tölvumiðstöð opnar nýjan vef

TMF Tölvumiðstöð hefur opnað nýja heimasíðu á slóðinni www.tmf.is Auk allra gagnlegu upplýsinganna af gamla vefnum er að finna nýjungar á nýjum vef. Til dæmis hefur verið sett inn skráningarkerfi fyrir námskeið TMF þar sem hægt er að skrá sig og ganga frá greiðslu.

Staða geðlækninga er verulega slæm - Erfitt fyrir fullorðna að fá tíma hjá geðlækni án tilvísunar.

Nánast ógerlegt er fyrir fullorðna að komast að hjá geðlæknum hér á landi að sögn Ellenar Calmon, framkvæmdastjóra ADHD-samtakanna. Morgunblaðið fjallaði um málið föstudaginn 6. september.

ADHD og einelti - Grein formanns ADHD í Fréttablaðinu í dag

Við sem samfélag berum líka ábyrgð á því að fræða börnin okkar um fjölbreytileika mannlífsins, virðingu og tillitsemi, segir formaður ADHD samtakanna í grein um ADHD og einelti.

Breytt Dagsetning: Sjálfsmynd og líðan barna með ADHD og Tíðni fylgikvilla hjá börnum með ADHD

Sara Tosti og Guðlaug Marion Mitchison kynna niðurstöður rannsókna sinna í húsnæði ADHD samtakanna miðvikudaginn 25. september.

Afmælisráðstefna ADHD samtakanna - Hægt að skrá sig gegn lægra gjaldi til 15.september

Skráning er nú í fullum gangi á afmælisráðstefnu ADHD samtakanna "Lífsins ganga með ADHD". Ráðstefnan verður dagana 25. og 26. október á Grand hótel Reykjavík. Frestur til að skrá sig gegn lægra gjaldi hefur verið framlengdur til 15. september.

RÚV fjallaði um helgina um biðlista eftir greiningu ADHD: Listarnir lengjast stöðugt

Um 240 börn bíða nú eftir greiningu hjá Þroska- og hegðunarstöð Heilsugæslunnar á höfuðborgarsvæðinu, þar af um 190 eftir ADHD greiningu. Biðlistinn lengist stöðugt og biðtíminn er að meðaltali um tíu mánuðir.

Magnaður fyrirlestur Marks

Fyrirlestur Mark Patey í Safnaðarheimili Neskirkju í gærkvöld tókst frábærlega. Rúmlega 70 manns mættu og hlýddu á erindi hans, sem var í senn fræðandi og gríðarskemmtilega fram sett. Patey segir ADHD eina verðmætustu vöggugjöfina sem hann hlaut, röskunin hafi gert honum kleift að hugsa út fyrir boxið.

Styttist í Reykjavíkurmaraþon: Hlaupum til góðs

Hátt í fjörutíu þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka hafa ákveðið að hlaupa í þágu ADHD samtakanna og sett af stað áheitasöfnun. ADHD samtökin eru afar þakklát fyrir þennan stuðning og hvetja alla þá sem láta sig málefni ADHD einstaklinga varða, að heita á hlauparana okkar.