30.10.2026
Menntaskólinn á Egilsstöðum hlýtur Hvatningarverðlaun ADHD samtakanna árið 2026. Með viðurkenningunni vilja ADHD samtökin þakka Menntaskólanum á Egilsstöðum fyrir framsækið og metnaðarfullt starf í þágu nemenda með ADHD. Skólinn hefur með frumkvæði sínu og markvissum vinnubrögðum sýnt hvernig skilningur, snemmtækur stuðningur og einstaklingsmiðuð nálgun geta skapað raunveruleg tækifæri fyrir ungt fólk með ADHD til að nýta styrkleika sína og blómstra í námi og lífi.
Megi fordæmi Menntaskólans á Egilsstöðum verða öðrum skólum, menntayfirvöldum og stjórnvöldum leiðarljós til betri vegar.
05.10.2026
ADHD Í BEINNI tekur við af ADHD í beinni. Við munum streyma fræðslufundum inn á nýju síðuna og hvetjum alla til að sækja um aðgang að henni. Streymið er eingöngu fyrir skuldlaust félagsfólk og því minnum við ykkur á að ganga frá árgjaldinu eða ganga í samtökin áður en þið sækið um aðild. Setja þarf kennitölu þess sem er skráður í samtökin sem svar við spurningu. Nýju grúppuna hægt að finna hér.
28.09.2026
Þátttakendur á Aðstandendanámskeiði fá frían aðgang að Kiddo í mánuð. Á námskeiðinu verður boðið upp á aðstoð við að setja appið upp fyrir hvern og einn.
Kiddo er fjölskylduapp sem hjálpar börnum að fylgja rútínum, klára verkefni og vera stolt af framförum sínum
KIDDO er app fyrir spjaldtölvur, Ipad og Android
https://kiddo.kids
23.09.2026
ADHD samtökin í samvinnu við Sjónarhól ráðgjafarmiðstöð halda áfram með foreldrahóp fyrir foreldra, forráðafólk og aðstandendur barna með ADHD, Saman í gegnum ADHD.
17.09.2026
Á þessum fræðslufundi verður fjallað um mikilvægi jafningjastuðnings og jafningjafræðslu fyrir foreldra og aðstandendur barna með ADHD.
Hvernig getur það hjálpað að hitta aðra sem deila svipaðri reynslu? Hvers vegna skiptir máli að vita að aðrir hafa gengið í gegnum það sama og fundið leiðir sem virka?
Við ræðum stöðu ADHD-fjölskyldna á Íslandi í dag, förum yfir góðar leiðir til að vinna með foreldrastreitu og kynnum þau úrræði sem ADHD samtökin og Sjónarhóll bjóða upp á.