Tvær nýjar bækur um ADHD!

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur 6-12 ára barna með ADHD - lokafrestur!

Lokafrestur fyrir skráningu - Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur barna með ADHD frá 6-12 ára aldri verður haldið á laugardaginn, 27. apríl 2024 í húsakynnum ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð og í gegnum fjarfundarbúnað. Pabbi, mamma, afi, amma... öll velkomin!

Aðalfundur ADHD samtakanna 2024

Aðalfundur ADHD samtakanna fór fram þriðjudaginn 16. apríl 2024 í húsakynnum félagsins að Háaleitisbraut 13. Á fundinum var kjörið í stjórn samkvæmt lögum samtakanna, ársreikningar vegna 2023 afgreiddir og ályktað um brýnustu verkefnin fram undan í geðheilbrigðismálum.

Akureyri fræðslufundur - ADHD og Konur

18. apríl kl. 20:00-22:00 Síðuskóli Stækka mynd ADHD og konur - Fræðslufundur Síðuskóla 18. apríl 2024, kl.20:00-22:00. Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi hjá Míró.is, námskeiðahaldari og stjórnarkona í ADHD samtökunum ætlar að koma og fræða okkur um ADHD og konur sem er hennar hugðarefni. Skilningur og þekking á ADHD er sífellt að aukast og vitum við að einkenni ADHD hverfa ekki þegar skóla eða vinnudegi líkur. Birtingarmynd ADHD hjá konum er ólík birtingarmynd karla og ein af ástæðunum fyrir því að þær eru einn stærsti hópurinn sem takast á við langvarandi álag og streitu. Sigrún mun fjalla um ADHD kvenna og mun hún koma inn á þætti eins hormóna, kröfur í daglegu lífi , styrkeika og leiðir til að finna jafnvægi í daglegu lífi, starfi og námi. Hvað er til ráða og hvar á að byrja. Allir eru velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Það verður heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt. Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum um líf með ADHD. ATH! Hægt er að ganga í ADHD samtökin á heimasíðu samtakanna: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

Vantraust og kerfishrun í þjónustu við fólk með ADHD

Aðalfundur ADHD samtakanna, 16. apríl 2024 samþykkti einum rómi meðfylgjandi ályktun um þá alvarlegu stöðu sem nú er uppi í þjónustu hins opinbera við fólk með ADHD: Vantraust og kerfishrun í þjónustu við fólk með ADHD. Í ályktuninni er skorað á Heilbrigðisráðherra annarsvegar og landlækni hinsvegar að grípa nú þegar til aðgerða vegna stöðunnar.

Aðalfundur ADHD samtakanna 2024 - Í kvöld

Boðað er til aðalfundar ADHD samtakanna fta. , í kvöld þriðjudaginn 16. apríl kl. 19:30. Aðalfundurinn fer fram í hátíðarsal ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Greining, meðferð og lyf bjarga lífum!

ADHD og fjármál - fjarnámskeið

For­maður geð­lækna illa áttaður?

Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna skrifar á visir.is vegna alvarlegs málflutnings formanns Geðlæknafélagsins á Bylgjunni. Grein Vilhjálms birtist 27.03.2024

Geðlæknir á grensunni - hvað gerir landlæknir.

Vilhjálmur Hjálmarsson, formaður ADHD samtakanna skrifar á visir.is og mætti í spjall í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni, vegna síendurtekinna rangfærslna og dylgna Óttars Guðmundssonar, nú síðast á dv.is Grein Vilhjálms birtist 25.03.2024 og viðtalið í Reykjavík Síðdegis var sama dag.